Haukur Helgi frá næstu sex vikurnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. janúar 2021 17:15 Haukur Helgi meiddist illa gegn sínum gömlu félögum. @morabancandorra Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Andorra í spænsku úrvalsdeildinni, verður frá næstu sex vikurnar eða svo. Þetta kom fram á Twitter-síðu félagsins í dag.
Meiddist Haukur Helgi í leik gegn UNICS Kazan í Evrópubikarnum en það er liðið sem Haukur lék með á síðustu leiktíð. Haukur Helgi hefur lent í nokkrum óhöppum síðan hann gekk í raðir Andorra. Ásamt því að greinast með Covid-19 þá hefur hann einnig lent á meiðslalistanum og missti úr fimm vikur vegna meiðsla í september. Þess utan hefur hann verið einkar öflugur og staðið sig með prýði. COMUNICAT Haukur Palsson @haukurpalsson té un trencament complet del lligament peroneoastragalí anterior i lesio parcial del fascicle profund del deltoideo del turmell dret. El seu retorn als terrenys de joc anirà en funció de l evolució de la lesió.#ÀnimsHauk pic.twitter.com/bvkToF9fW4— MoraBancAndorra (@morabancandorra) January 15, 2021 Haukur Helgi ræddi við íþróttvef Morgunblaðsins um meiðslin sem munu halda honum frá keppni næstu sex vikurnar eða svo fyrr í dag. „Ég sneri mig illa í leik gegn gömlu liðsfélögunum. Var að fara upp í þrist á annarri mínútu og fóturinn minn leiðist áfram og fótur varnarmannsins sömuleiðis svo ég lendi á honum. Ég sleit eitt liðband og reif tvö í viðbót svo ég verð frá í svona sex vikur samkvæmt læknunum,“ sagði Haukur Helgi í viðtalinu. „Ef ég hefði meiðst í desember hefði ég misst af tuttugu leikjum en nú er að komast meiri regla á þetta svo ég mun líklegast missa af fimmtán leikjum,“ bætti hann við. „Ég byrjaði tímabilið ágætlega en reif síðan í nára. Kem til baka í nokkra leiki en fæ svo Covid-19. Kem til baka og þá eru fjórtán leikir á rúmlega þrjátíu dögum. Maður gerði varla annað en að fljúga og spila án þess að ná sér almennilega á milli.“ „Erum búnir að vera í basli með meiðsli í hópnum. Þetta átti að fyrsti leikurinn síðan á undirbúningstímabilinu sem við erum allir saman. Erum búnir að vera missa menn út hér og þar en höfum ekki náð að klára jafna leiki. Þetta er búið að vera brekka en við erum enn jákvæðir,“ sagði Haukur Helgi að lokum en gengi Andorra hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarið. Liðið hefur tapað tíu af síðustu ellefu leikjum sínum. Liðið er sem stendur í 11. sæti af átján liðum í spænsku úrvalsdeildinni. Þá er það komið í 16-liða úrslit Evrópubikarsins í körfubolta.
Körfubolti Spænski körfuboltinn Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Leik lokið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Íslenski boltinn Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Fleiri fréttir „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Jaka áfram í Keflavík næstu þrjú árin „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Knicks og Pacers hefja nýtt einvígi á mánudag Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Sjá meira