Trump á enn bankareikning í Kína Kjartan Kjartansson skrifar 21. október 2020 23:21 Kona stendur við útskornar myndir af Xi Jinping, forseta Kína, og Donald Trump Bandaríkjaforseta í Moskvu. Samskipti Kína og Bandaríkin hafa farið versnandi í tíð Trump sem hóf viðskiptastríð gegn stjórnvöldum í Beijing. Vísir/EPA
Donald Trump Bandaríkjaforseti er enn með bankareikning í Kína þar sem hann hefur reynt að landa viðskiptasamningum í gegnum tíðina. Forsetinn hefur ekki gefið upp bankareikninginn í opinberri hagsmunaskráningu sinni en upplýsingar um hann er að finna í skattskýrslum hans. Kína er aðeins eitt þriggja landa utan Bandaríkjanna þar sem Trump er með bankareikning. Hann á í viðskiptum við banka á Bretlandi og Írlandi þar sem fyrirtæki hans rekur golfvelli. New York Times, sem hefur upplýsingar um skattskýrslur forsetans undir höndum, segir að kínverski bankareikningurinn komi ekki fram í hagsmunaskráningu Trump vegna þess að hann er skráður á einkahlutafélag. Ekki sé ljóst hjá hvaða fjármálstofnun reikningurinn er. Trump hefur í gegnum tíðina átt í viðskiptum við kínversk ríkisfyrirtæki og reynt að ná samningum í landinu án árangurs. Blaðið segir ekki ljóst hversu miklir fjármunir hafi farið um reikninginn sem er skráður á eignarhaldsfélag um hótelrekstur forsetans. Lögmaður fyrirtækis Trump segir að það hafi stofnað reikninginn til að greiða skatta í Kína í tengslum við viðskiptatækifæri þar. Engir samningar hafi þó verið gerðir og skrifstofa sem fyrirtækið kom á fót í Kína hafi verið athafnalaus frá 2015. Bankareikningurinn hafi aldrei verið notaður í öðrum tilgangi. New York Times bendir á að stærsti ríkisbanki Kína hafi þar til í fyrra leigt þrjár hæðir í Trump-turninum í New York. Trump hefur lengi sóst eftir að selja leyfi til að nota nafn sitt og skráð það sem vörumerki í Kína. Kínversk stjórnvöld hafa veitt nokkur vörumerkjaleyfi til Trump og dóttur hans Ivönku eftir að hann varð forseti árið 2017. Í kosningabaráttunni hefur Trump ítrekað sakað keppinaut sinn, Joe Biden fyrrverandi varaforseta, um að vera handgenginn Kína meðal annars með óljósum ásökunum um að einn sona hans hafi auðgast á viðskiptum þar. Barack Obama, fyrrverandi forseti, gerði grín að uppljóstrunum um kínverska bankareikning Trump þegar hann kom fram á kosningafundi fyrir Biden í fyrsta skipti í kvöld. „Getið þið ímyndað ykkur ef ég hefði átt leynilegan kínverskan bankareikning þegar ég bauð mig fram til endurkjörs? Haldið þið að Fox News hefði haft svolitlar áhyggjur af því? Þau hefðu kallað mig „Beijing-Barry“,“ sagði Obama í gamansömum tón. Fyrri umfjöllun New York Times upp úr skattskýrslunum leiddi í ljós að Trump hefur greitt lítinn sem engan tekjuskatt til bandarísku alríkisstjórnarinnar undanfarin ár. Ástæðan er sú að hann hefur notað mikið bókfært tap til þess að lækka eða fella alveg niður skattgreiðslurnar.
Donald Trump Kína Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkin Tengdar fréttir Miklar skuldir forsetans sagðar ógna öryggi Bandaríkjanna Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ábyrgur fyrir 421 milljón dala lánum. Gjalddagar flestra þessara lána eru á næstu fjórum árum. 28. september 2020 10:21 Segja Trump hafa greitt samtals 1.500 dollara í tekjuskatt á tveimur árum New York Times segist hafa undir höndum gögn um skattskil Donalds Trump Bandaríkjaforseta. 27. september 2020 22:17 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Sjá meira
Miklar skuldir forsetans sagðar ógna öryggi Bandaríkjanna Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ábyrgur fyrir 421 milljón dala lánum. Gjalddagar flestra þessara lána eru á næstu fjórum árum. 28. september 2020 10:21
Segja Trump hafa greitt samtals 1.500 dollara í tekjuskatt á tveimur árum New York Times segist hafa undir höndum gögn um skattskil Donalds Trump Bandaríkjaforseta. 27. september 2020 22:17