Yfirmaður siðanefndar segir af sér eftir að Johnson lýsti stuðningi við ráðherra Kjartan Kjartansson skrifar 20. nóvember 2020 12:25 Johnson stendur þétt að baki Priti Patel, innanríkisráðherra, sem er talin hafa kúgað undirmenn sína í ráðuneytinu. Vísir/EPA
Ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar um siðareglur ráðherra sagði af sér í dag eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra, lýsti yfir stuðningi við ráðherra sem er talinn hafa sýnt af sér kúgunartilburði gagnvart starfsmönnum ráðuneytis síns. Niðurstaða rannsóknar Alex Allan, siðaráðgjafa ríkisstjórnarinnar, á framferði Priti Patel, innanríkisráðherra, var að hegðun hennar mætti lýsa sem „kúgandi“ [e. bullying] þó að hugsanlega hafi það ekki verið með ráðum gert. Patel sendi frá sér yfirlýsingu og baðst afsökunar á að hegðun sín hefði „valdið fólki uppnámi í fortíðinni“. Johnson sagðist í yfirlýsingu um niðurstöður skýrslu Allan bera „fullt traust“ til Patel eftir að hún baðst afsökunar á að hafa „óviljandi“ valdið samstarfsfólki sínu uppnámi. Fleiri ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa komið Patel til varnar í dag. Allan tilkynnti um afsögn sína þegar Johnson birti yfirlýsinguna, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Hann sagðist gera sér grein fyrir að það væri forsætisráðherrans að meta hvort að framferði ráðherra bryti gegn siðareglum. „En mér finnst það rétt að ég segi nú af mér embætti sem óháðar ráðgjafi forsætisráðherrans um siðareglurnar,“ sagði hann. Nokkrir opinberir starfsmenn sökuðu Patel um að leggja sig í einelti eða beita þá kúgun. Philip Rutnam, hæst setti opinberi starfsmaður innanríkisráðuneytisins, sagði af sér í mars og sagði þá að Patel hefði lítillækkað starfsmenn og skapað andrúmsloft ótta í ráðuneytinu. AP-fréttastofan segir að forsætisráðuneyti Johnson hafi tafið birtingu niðurstaðna rannsóknarinnar á Patel um margra mánaða skeið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem írafár skapast í kringum Patel. Þegar hún var ráðherra alþjóðlegrar þróunar árið 2017 kom í ljós að hún fundað á laun með stjórnmálaleiðtogum og samtökum í Ísrael í fylgd með áhrifamiklum málafylgjumanni Ísraels innan Íhaldsflokksins. Hún lét utanríkisráðuneytið ekki vita af erindrekstri sínum í Ísrael og var neydd til að segja af sér í kjölfarið.
Bretland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Sjá meira