Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði Kristján Már Unnarsson skrifar 5. júlí 2022 14:41 Frá þjóðveginum um Dynjandisheiði. Arnar Halldórsson Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna.
Þrjú tilboð bárust en þau voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Útboðið var auglýst á evrópska efnahagssvæðinu. Næstlægsta boð kom frá Íslenskum aðalverktökum hf. í Reykjavík, 2.653 milljónir króna, sem var 10 prósent yfir kostnaðaráætlun. Þriðja boðið og það hæsta átti Borgarverk ehf. í Borgarnesi, 2.994 millljónir króna, sem reyndist 24 prósent yfir áætlun. Suðurverksmenn þekkja vel til vegagerðar á Vestfjörðum. Þeir vinna núna að þverun Þorskafjarðar, breikkuðu Djúpveg í Hestfirði og Seyðisfirði og grófu Dýrafjarðargöng ásamt Metrostav. Þá þveraði Suðurverk einnig Kjálkafjörð og Mjóafjörð í Barðastrandarsýslum. Vegarkaflinn sem núna var boðinn út er 12,6 kílómetra langur og liggur um hæsta hluta heiðarinnar.Grafík/Stöð 2 Þetta er annar verkþátturinn í endurbyggingu Vestfjarðavegar milli Mjólkár í Arnarfirði og Flókalundar í Vatnsfirði. Íslenskir aðalverktakar eru langt komnir með fyrsta áfangann, sem var tvískiptur. Annarsvegar 4,3 kílómetra kafli í botni Arnarfjarðar, milli Mjólkár og Dynjanda, og er hann tilbúinn með bundnu slitlagi. Hins vegar er 5,7 kílómetra kafli upp úr Vatnsfirði að Bíldudalsgatnamótum í Helluskarði en sá kafli var síðar lengdur upp í 8,2 kílómetra. Búið er að klæða um helming kaflans og vonast til að síðari helmingurinn fái bundið slitlag fyrir verslunarmannahelgi. Kaflinn sem núna bætist við nær frá Norðdalsá, norðan Bíldudalsgatnamóta, og liggur um hæsta hluta heiðarinnar, um efstu hlíðar Geirþjófsfjarðar og norður fyrir sýslumörk. Vegurinn verður að mestu leyti byggður í nýju vegstæði en að hluta til í núverandi vegstæði, að því er fram kemur í útboðslýsingu. Inni í verkinu er einnig gerð námuvegar að námu í Trölladal og gerð tveggja áningarstaða. Framkvæmdatími er áætlaður tvö ár og gert ráð fyrir verklokum 15. júlí 2024. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá því í síðustu viku um kaflana sem eru að klárast:
Vegagerð Samgöngur Dýrafjarðargöng Ísafjarðarbær Vesturbyggð Umferðaröryggi Byggðamál Tengdar fréttir Malarköflum fækkar um tvo á hringleiðinni um Vestfirði Fyrsti kaflinn á Dynjandisheiði sem lagður er bundnu slitlagi var opnaður umferð um helgina og hefur malarköflum á Vestfjarðahringnum núna fækkað um átta kílómetra. 27. júní 2022 23:22 Vegagerðin býður út langan vegarkafla á Dynjandisheiði Þrettán kílómetra langur vegarkafli á hæsta hluta Dynjandisheiðar verður boðinn út á morgun. Samtímis er Vegagerðin að skoða málamiðlun að nýju vegstæði við fossinn Dynjanda til að hlífa sem mest bæði landslagi og fornminjum. 1. júní 2022 22:44 Hyggjast klára brúargólfið í Þorskafirði fyrir veturinn Smíði Þorskafjarðarbrúar, sem styttir Vestfjarðaveg um níu kílómetra, er komin vel á veg og er stefnt að því að brúargólfið verði tilbúið í haust. Verktakinn hefur leigt Bjarkalund undir vinnubúðir og verður hótelið lokað ferðamönnum næstu tvö árin. 6. júní 2022 22:26 Verktakinn byrjar þverun Þorskafjarðar í næstu viku Verksamningur milli Vegagerðarinnar og Suðurverks um þverun Þorskafjarðar var undirritaður í dag. Vegamálastjóri segir þetta lið í gríðarlegum samgöngubótum á Vestfjörðum sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fimmtíu kílómetra. 8. apríl 2021 19:52 Hátíð í heilum fjórðungi þegar langþráð draumsýn rætist Flaggað var víða á Vestfjörðum í tilefni þess að síðasta haftið í Dýrafjarðagöngum var rofið í dag. Sjaldan eða aldrei hefur jarðgangagerð gengið jafnvel hérlendis. 17. apríl 2019 20:00 Dofri bauð lægst í Dýrafjarðargöng Tékkneski verktakinn Metrostav og Suðurverk buðu lægst í Dýrafjarðargöng. Dofri Eysteinsson, forstjóri Suðurverks, vonast til að hefjast handa síðsumars. 24. janúar 2017 18:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Atvinnulíf Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Viðskipti innlent Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Viðskipti innlent FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Neytendur Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík Atvinnulíf Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Viðskipti innlent Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða Neytendur Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Markaðstorg með raforku spretta upp KEA nú stærsti hluthafinn í Norlandair Fjögurra stjörnu hótel opni við Skógarböðin Hákon nýr öryggisstjóri Arion Sjá meira
Malarköflum fækkar um tvo á hringleiðinni um Vestfirði Fyrsti kaflinn á Dynjandisheiði sem lagður er bundnu slitlagi var opnaður umferð um helgina og hefur malarköflum á Vestfjarðahringnum núna fækkað um átta kílómetra. 27. júní 2022 23:22
Vegagerðin býður út langan vegarkafla á Dynjandisheiði Þrettán kílómetra langur vegarkafli á hæsta hluta Dynjandisheiðar verður boðinn út á morgun. Samtímis er Vegagerðin að skoða málamiðlun að nýju vegstæði við fossinn Dynjanda til að hlífa sem mest bæði landslagi og fornminjum. 1. júní 2022 22:44
Hyggjast klára brúargólfið í Þorskafirði fyrir veturinn Smíði Þorskafjarðarbrúar, sem styttir Vestfjarðaveg um níu kílómetra, er komin vel á veg og er stefnt að því að brúargólfið verði tilbúið í haust. Verktakinn hefur leigt Bjarkalund undir vinnubúðir og verður hótelið lokað ferðamönnum næstu tvö árin. 6. júní 2022 22:26
Verktakinn byrjar þverun Þorskafjarðar í næstu viku Verksamningur milli Vegagerðarinnar og Suðurverks um þverun Þorskafjarðar var undirritaður í dag. Vegamálastjóri segir þetta lið í gríðarlegum samgöngubótum á Vestfjörðum sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fimmtíu kílómetra. 8. apríl 2021 19:52
Hátíð í heilum fjórðungi þegar langþráð draumsýn rætist Flaggað var víða á Vestfjörðum í tilefni þess að síðasta haftið í Dýrafjarðagöngum var rofið í dag. Sjaldan eða aldrei hefur jarðgangagerð gengið jafnvel hérlendis. 17. apríl 2019 20:00
Dofri bauð lægst í Dýrafjarðargöng Tékkneski verktakinn Metrostav og Suðurverk buðu lægst í Dýrafjarðargöng. Dofri Eysteinsson, forstjóri Suðurverks, vonast til að hefjast handa síðsumars. 24. janúar 2017 18:30