Zlatan aftur í sænska landsliðið

Zlatan Ibrahimovic í leik með AC Milan gegn Atalanta í …
Zlatan Ibrahimovic í leik með AC Milan gegn Atalanta í ítölsku A-deildinni í síðasta mánuði. AFP/Marco Bertorello

Zlatan Ibrahimovic hefur verið kallaður á ný í sænska landsliðið í knattspyrnu eftir eins árs  fjarveru, þó hann sé orðinn 41 árs gamall.

Zlatan er nýbyrjaður að spila á ný með AC Milan eftir slæm meiðsli í hné og hefur aðeins leikið þrjá leiki með ítalska liðinu, alla sem varamaður.

Janne Andersson, landsliðsþjálfari Svía, kveðst ekki reikna með að tefla Zlatan fram í byrjunarliðinu þegar lið hans mætir Belgíu og Aserbaídsjan í undankeppni EM síðar í þessum mánuði en hann gefi sér fleiri möguleika í sambandi við innáskiptingar.

Zlatan er markahæsti leikmaðurinn í sögu sænska landsliðsins með 62 mörk og þá er hann sjötti leikjahæstur frá upphafi með 121 landsleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert