Umfang árásarinnar kom á óvart Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. apríl 2024 19:46 Albert ræddi árásina í kvöldfréttum. Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur segir að umfang árásar Írana á Ísrael sem gerð var í gær komi honum á óvart. Árásin sem slík hafi þó ekki komið á óvart. Albert segir ljóst að Ísraelsmenn muni bregðast við en telur litlar líkur á því að allsherjarstríð brjótist út.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Eins og fram hefur komið gerðu Íranar umfangsmikla árás á Ísrael í gær. Þeir notuðust við rúmlega tvö hundruð sjálfsprengidróna, rúmlega þrjátíu stýriflaugar og rúmlega 120 eldflaugar. Ísraelsmönnum tókst að skjóta niður megnið. Meira en skilaboð „Íranar voru búnir að gefa það í skyn að þetta væri það sem allir biðu eftir, að þetta væri hugsað sem skilaboð og yrði takmörkuð aðgerð og bara einu sinni og allt það. En svo kemur í ljós að þetta er stórfelld árás,“ segir Albert. „Svo minnir þetta auðvitað Ísraelsmenn væntanlega á, grunsemdirnar um að Íranar séu að undirbúa að smíða kjarnavopn þannig að í stað þess að vera skilaboðarárás ef svo má að orði komast þá er þetta stórfelld árás sem undirstrikar væntanlega og örugglega í augum ísraelskra ráðamanna að Íran er til lengri og skemmri tíma umtalsverð og veruleg ógn við Ísrael.“ Litlar líkur á allsherjarstríði Albert segist telja að Ísrael muni bregðast við árásinni með hernaðarlegum hætti. Það sé hinsvegar ekki auðvelt að taka ákvörðun um slíkt og margt sem togist þar á. „Þetta er ekki auðveld ákvörðun, það togast ábyggilega á hin óumdeilda skylda stjórnvaldsins að tryggja öryggi lands og þjóðar og hinsvegar auðvitað þrýstingur bandamanna, hagsmunir bandamanna og einnig að forðast stjórnlausa stigmögnun og það er allt sem bendir til að hvorki Íranar né Ísraelsmenn vilji stjórnlausa stigmögnun. En þeir munu bregðast við að mínu mati með einhverjum hernaðarlegum hætti.“ Er möguleiki á allsherjar stríði? „Þetta er vissulega eldfimt svæði en ég held að möguleikarnir á allsherjarstríði þarna séu samt tiltölulega takmarkaðir, fyrst og fremst, auðvitað eru margar ástæður, en fyrst og fremst kannski sú ástæða að Ísraelsmenn hafa gríðarlega hernaðarlega yfirburði yfir Írana og aðra aðila á svæðinu.“ Umfangið óvænt „Það kom mönnum á óvart hvað þetta er umfangsmikil árás og hvað það eru notuð fjölbreytt vopn, drónar, stýriflaugar og eldflaugar eins og ég nefndi. Þær koma úr mismunandi áttum.“ Albert segir Ísraelsmenn hafa yfir að ráða gríðarlega öflugum loftvörnum. Þeir hafi einnig notið stuðnings herþotna Breta, Bandaríkjamanna og Frakka sem voru á svæðinu. „En árásin eins og ég sagði undirstrikar í augum Ísraelsmanna hvað Íranar geta gert. Þeir eiga þessar eldflaugar í miklu magni og þeir eru að þróa kjarnavopn, rökstuddur grunur þannig að Ísraelsmenn munu bregðast við.“
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Íran Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Fleiri fréttir Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Sjá meira