Innlent

Telur ekki ástæðu til að leggja til hertari aðgerðir

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki ástæðu til að grípa til harðari samkomutakmarkana og sóttvarnaráðstafnir hér á landi, til að kveða niður þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins. Hann telur að núverandi takmarkanir ættu þó áfram að vera í gildi. Þetta kom fram í máli hans í umræðuþætti um Covid-19 á RÚV í kvöld.

„Við erum búin að vera með tiltölulega harðar aðgerðir, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, núna undanfarið. Ég hef fulla trú á því að þær aðgerðir muni virka til að ná þessari kúrfu niður. Ég held að það muni taka aðeins tíma. Ég hef talað um eina til tvær vikur þangað til við förum að sjá árangur, og svo mun það sennilega ganga hægt,“ sagði Þórólfur í þættinum í kvöld.

Hann bætti við að hann teldi ekki ástæðu til þess að herða aðgerðir frekar og kvaðst ekki munu leggja það til við heilbrigðisráðherra. Hann teldi að þær takmarkanir sem nú eru í gildi þyrftu að vera það áfram.

Vildi að þetta væri eins og tölvuleikur

Aðspurður hvort ekki væri hægt að halda samfélaginu gangandi á sem eðlilegastan hátt, samhliða því að vernda viðkvæma hópa, sagðist Þórólfur vilja óska þess að hægt væri að gera eins og í tölvuleik.

„Við bara værum með stýripinna og myndum stjórna nákvæmlega hverjir fengju veikina, hvaða hraustu einstaklingar sem ekki myndu fara illa út úr veikinni myndu veikjast. Svo gætum við aðeins gefið í og slakað á, en það er bara ekki þannig,“ sagði Þórólfur.

Hann segir auðvelt að missa faraldurinn úr höndunum ef of mikið er slakað á aðgerðum.

„Þá fer þetta bara út um allt og áður en maður veit af er þetta komið í viðkvæma hópa, sama hvað við gerum,“ sagði Þórólfur og benti á að hingað til hefði gengið vel að vernda íbúa hjúkrunarheimila og aðra viðkvæma hópa. Þrátt fyrir það hafi veiran náð að koma sér þar inn.


Tengdar fréttir

„Ekki mikið rúm fyrir miklar tilslakanir“

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir ekki mikið svigrúm til tilslakana frá þeim sóttvarnaaðgerðum sem nú eru í gildi og renna út næstkomandi mánudag. Ástæðan sé sú að faraldurinn sé ekki í rénun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×