Messi missir líka af næsta leik

Lionel Messi fer af velli í leiknum gegn Lyon um …
Lionel Messi fer af velli í leiknum gegn Lyon um síðustu helgi. AFP

Lionel Messi missir af öðrum leik París SG í röð í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu á morgun en þá leikur liðið gegn Montpellier.

Messi fékk högg á hné í leik PSG gegn Lyon um síðustu helgi og þurfti að fara af velli, og gat í kjölfarið ekki leikið með liðinu þegar það vann Metz 2:1 á miðvikudaginn.

Franska félagið skýrði frá því að staðan á Messi yrði skoðuð á ný á sunnudaginn og þá kæmi í ljós hvort hann gæti spilað stórleikinn gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn kemur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert