Elín Hirst vill Katrínu sem forsætisráðherra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. september 2021 11:36 Mörgum sjálfstæðismanninum svegldist mögulega á kaffinu í morgun þegar í ljós kom að Elín Hirst vill Katrínu sem forsætisráðherra. „Við viljum Katrínu Jakobsdóttur áfram sem forsætisráðherra“ segir í heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Undir rita fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar, þeirra á meðal Elín Hirst, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Tveir stuðningsmenn kostuðu auglýsinguna.
Athygli vekur að auglýsingin er ekki merkt Vinstri grænum og er heldur ekki í litum flokksins, þeim græna og rauða. Lesa má á milli línanna að þeir sem skrifa undir styðji Katrínu sem forsætisráðherra þótt viðkomandi séu ekki endilega stuðningsmenn Vinstri grænna eða líklegir kjósendur flokksins. „Ég er hrifinn af persónukjöri, þess vegna kvitta ég undir,“ segir Þorgrímur Þráinsson rithöfundur. Þorgrímur var á rúntinum nærri Raufarhöfn þegar fréttastofa náði af honum tali. Hann segist ekki hafa hugmynd um hver hafi fjármagnað auglýsinguna. Þorgrímur Þráinsson er vinamargur og segist fylgjandi persónukjöri. Hann styðji Katrínu en líka marga fleiri.Vísir/Vilhelm „Ég hef ekki hugmynd. Ég myndi líka styðja Bjarna Ben, Þorgerði Katrínu, Brynjar Níelsson og fleiri manneskjur sem ég þekki,“ segir Þorgrímur. Katrín sé manneskja sem hann treysti. „Ég er ekki flokksbundinn,“ segir Þorgrímur. Lísa Kristjánsdóttir er aðstoðarmaður Katrínar forsætisráðherra. Hún segir auglýsinguna einfaldlega stuðningsmannaauglýsingu sem gjarnan sé sett fram. Tvist auglýsingastofa hafi unnið hana fyrir hönd stuðningsmannanna en sama auglýsingastofa sér um auglýsingar fyrir flokkinn. „Þetta hefur verið gert oft áður,“ segir Lísa. Þau vilja Katrínu Jakobsdóttur sem forsætisráðherra. Ekki er þó víst hvaða flokk fólkið ætlar að kjósa. „Svona stuðningsmannaauglýsingar eru aldrei undir merkjum stjórnmálaflokksins.“ Lísa segir tvo aðila hafa fjármagnað auglýsinguna fyrir hönd stuðningsmanna. Þau Guðrún Ágústsdóttir, fyrrverandi forstjóri borgarstjórnar og borgarfulltrúi Alþýðubandalags og síðar Reykjavíkurlista, og Arnór Björnsson, viðskiptafræðingur í Reykjavík, sem er meðal þeirra sem eru á listanum. Fleiri áhugaverðir eru á listanum eins og tónlistamaðurinn Bubbi Morthens. Hann hefur farið mikinn í aðdraganda kosninga á Facebook og hvatt fólk til að kjósa Guðmund Andra Thorsson, þingmann Samfylkingarinnar, sem er í framboði í Kraganum. Bubbi er fylgjandi persónukjöri.Vísir/Egill Þegar fréttastofa spurði Bubba hvernig þetta mætti vera sagðist hann sannarlega styðja Katrínu sem og Guðmund Andra, auk Þorgerðar Katrínar, sem býður fram fyrir Viðreisn í Kraganum. Hann kýs að líta svo á að um persónukjör sé að ræða en ekki val á milli flokka. Hvern Bubbi mun kjósa verður að koma í ljós. Bubbi er búsettur á Seltjarnarnesi sem tilheyrir Kraganum. Hann á því ekki kost á því að kjósa Katrínu og þarf að velja á milli Guðmundar Andra og Þorgerðar Katrínar. Vísir reyndi að ná tali af Elínu Hirst við vinnslu fréttarinnar en án árangurs. Viðbrögðum Elínar verður bætt við fréttina ef næst í hana.
Vinstri græn Alþingiskosningar 2021 Auglýsinga- og markaðsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sjá meira