Brynjar segist aldrei muni taka þátt í að breyta sóttvarnarlögum við þessar aðstæður Jakob Bjarnar skrifar 6. apríl 2021 14:18 Brynjar Níelsson segir það ekkert þýða fyrir Bjarna Benediktsson formann flokksins að stilla sér upp við vegg með að samþykkja ný sóttvarnarlög. Og gera má ráð fyrir því að það eigi við vopnabróður Brynjars á þingi einnig; Óla Björn Kárason. vísir/vilhelm Talið er víst að margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni setja sig alfarið á móti því að breyta sóttvarnarlögum í þá átt að löglegt sé að skikka fólk í sóttvarnarhús, komi til þess. „
Ég mun ekki taka þátt í því að breyta sóttvarnarlögum núna þegar menn hafa ekki beitt viðurlögum, né sýnt fram á að fólk hafi verið að brjóta sóttkví. Byrjum á að sýna fram á það, að fólk hafi brotið sóttkví, byrjum á því að beita viðurlögum og sekta þá sem það gera. Þetta er algjör vitleysa,“ segir Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Vísi. Mikil óvissa er uppi eftir úrskurð sem féll í héraði í gær þess efnis ekki sé heimilt að skikka fólk í sóttvarnarhús eigi það þess kost að dvelja heima hjá sér í sóttkví. Stuðningur innan Sjálfstæðisflokksins við lagabreytingar lítill Meðal þess sem nú er rætt er að kalla saman þing og breyta lögum til að mæta þessu. Brynjar telur það fráleitt. „Ef menn líta til meðalhófsreglu er ekki hægt að leyfa sér slík vinnubrögð. Fráleitt að koma inná þingi breytingu á sóttvarnarlögunum. Ég myndi aldrei taka þátt í því. hreinar línur með það. ég veit ekki, gæti orðið tæpt á þinginu. menn verða að koma sér niður á jörðina, hvert erum við komin?“ Brynjar telur víst að ýmsir innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins myndu seint fella sig við slíkar lagabreytingar. Hann segir að menn verði að horfa til aðstæðna; það sé ekki svo að fólk sé að deyja eða um sé að ræða álag á heilbrigðiskerfið. Sigríður Á. Andersen er meðal þeirra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem hefur verið afar gagnrýnin á sóttvarnaraðgerðir.vísir/vilhelm „Tilgangurinn helgar ekki meðalið,“ segir Brynjar sem nú er staddur á Spáni. Hann furðar sig á því að ef hann komi heim ósmitaður og ekki sé líklegt að hann hafi verið í kringum einhvern smitaðan að hann yrði þá skikkaður í sóttvarnarhús. En þetta eigi bara við þá sem eru að koma til landsins, ekki þá sem komist í návígi við einhvern smitaðan hér heima. Segir að það þýði ekki að stilla sér upp við vegg „Sér enginn mótsögn í þessu? Eða eru menn orðnir sturlaðir. Það er stóra spurningin. Maður veltir því fyrir sér, hvort menn séu að tapa sér í svona ástandi? Missa skynsemina og alla dómgreind. Að allt megi? Af því að við erum öll almannavarnir og sóttvarnaryfirvöld ætla að vera best í heimi?“ spyr þingmaðurinn og ljóst að honum sýnist ríkja fullkomið fár. Brynjar segir að hann efist stórlega um að formaður flokksins, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra reyni að setja þingmönnum stólinn fyrir dyrnar. Hann viti að það þýði ekkert að tala svo við sig eða Sigríði Á. Andersen ef því er að skipta. Þá segist Brynjar ekki vera slíkur maður að hann ætli vilji ráðast á ráðherra eða hrópa eftir mótsögn. Það sé flókið að vera ráðherra þegar allir eru farnir af taugum og þetta sé snúið viðfangsefni. En það hljóti að vera svo að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra beri ábyrgð á þessari snurðu sem hlaupin er á þráðinn.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Alþingi Tengdar fréttir Segir ríkisstjórnina glannalega Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms um sóttkvíarhótel til Landsréttar og skorar á stjórnvöld að breyta lögum þannig að heimilt verði að skylda farþega þar í sóttkví. Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um næstu skref. 6. apríl 2021 12:11 Sennilega sitja þær Katrín og Áslaug Arna með Svandísi í súpunni Dómurinn var afdráttarlaus: Ekki má halda fólki í sóttkví á sóttvarnahóteli ef það á í önnur hús að venda. Samkvæmt heimildum Vísis hyggjast Píratar kalla eftir gögnum sem lágu til grundvallar þegar málið var afgreitt á ríkisstjórnarfundi. 6. apríl 2021 11:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira
Segir ríkisstjórnina glannalega Sóttvarnarlæknir hefur kært úrskurð héraðsdóms um sóttkvíarhótel til Landsréttar og skorar á stjórnvöld að breyta lögum þannig að heimilt verði að skylda farþega þar í sóttkví. Velferðarnefnd Alþingis fundar nú um næstu skref. 6. apríl 2021 12:11
Sennilega sitja þær Katrín og Áslaug Arna með Svandísi í súpunni Dómurinn var afdráttarlaus: Ekki má halda fólki í sóttkví á sóttvarnahóteli ef það á í önnur hús að venda. Samkvæmt heimildum Vísis hyggjast Píratar kalla eftir gögnum sem lágu til grundvallar þegar málið var afgreitt á ríkisstjórnarfundi. 6. apríl 2021 11:30