Magnaður Doncic afgreiddi Argentínumennina

Luka Doncic á leið að körfu Argentínumanna í leiknum í …
Luka Doncic á leið að körfu Argentínumanna í leiknum í morgun. AFP

Slóveninn ungi Luka Doncic sýndi og sannaði í morgun að hann er einn af bestu körfuboltamönnum heims í dag, þegar hann átti sannkallaðan stórleik í sigri Slóvena á Argentínumönnum, 118:100, á Ólympíuleikunum í Tókýó.

Doncic sýndi sínar bestu hliðar og skoraði 48 stig í leiknum, ásamt því að taka 11 fráköst og eiga 5 stoðsendingar. Félagi hans, Klemen Prepelic skoraði 22 stig. Luis Scola skoraði mest fyrir Argentínumenn, 23 stig.

Þetta var fyrsti leikurinn í C-riðli keppninnar en Japan og Spánn eigast við síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert