Bæði Manchester-liðin vilja Gnabry Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. júlí 2022 16:01 Serge Gnabry gæti verið á leið til Englands á nýjan leik. EPA-EFE/MATTHIAS BALK Serge Gnabry, framherji Bayern München og þýska landsliðsins, virðist fáanlegur fyrir rétta upphæð. Hann á ár eftir af samningi sínum í Bæjaralandi og renna bæði Manchester-liðin hýru auga til leikmannsins.
Hinn 26 ára gamli Gnabry hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning við Bayern og virðist sem endurkoma til Englands gæti verið í kortunum. Gnabry spilaði með Arsenal á sínum yngri árum áður en hann hélt aftur til heimalandsins. Þar hefur hann getið af sér gott orð og verið mikilvægur hlekkur í sigurmaskínu Bayern á undanförnum árum. Enska götublaðið The Sun heldur því fram að bæði Englandsmeistarar Manchester City sem og Manchester United séu tilbúin að festa kaup á leikmanninum sem ku vera falur fyrir aðeins 35 milljónir punda þar sem Bayern vill ekki missa hann frítt næsta sumar. Mætti flokka það sem rán um hábjartan dag miðað við núverandi markað. Both Pep Guardiola and Erik ten Hag 'want to sign £35m Bayern Munich winger Serge Gnabry' https://t.co/zAotaLUBJw— MailOnline Sport (@MailSport) July 3, 2022 Pep Guardiola vill fá Gnabry til Man City til að fylla skarð Raheem Sterling sem virðist vera á leið til Chelsea í leit að meiri spiltíma. Sá þýski getur spilað á báðum vængjum eða sem fremsti maður og ætti því að nýtast liði Guardiola vel. Erik ten Hag, nýráðinn þjálfari Manchester United, vill auka gæðin sem og breiddina í sóknarlínu Rauðu djöflanna. Gnabry myndi gera bæði sem og hann yrði þetta stóra nafn sem Man United virðist reyna kaupa hvert sumar. Bayern vill halda Gnabry í sínum röðum og bauð félagið honum 200 þúsund pund í vikulaun til að vera áfram. Leikmaðurinn neitaði og miðað við hvað Manchester-liðin borga mönnum oft á tíðum í laun gæti sú tala hækkað verulega færi Gnabry sig yfir til Bretlandseyja.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fleiri fréttir Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Sjá meira