Lífið

Plöntur sem fæla frá lúsmý

Stefán Árni Pálsson skrifar
Plöntur greinilega lausnin í baráttunni gegn lúsmý.
Plöntur greinilega lausnin í baráttunni gegn lúsmý.

Það eru til ákveðnar plöntur sem hreinlega fæla frá lúsmý og ýmis skordýr. Vala Matt kynnti sér málið í síðustu viku í Íslandi í dag á Stöð 2 en umræddar plöntur eru einnig fallegar.

Blómaskreytirinn og útstillingahönnuðurinn Bryndís Eir Þorsteinsdóttir hefur skoðað hvaða plöntur er best að nota til að fæla frá óæskileg skordýr.

Vala skellti sér til Hveragerðis þar sem Bryndís býr og starfar og fræddist um þessi mál og þar kom ýmislegt skemmtilegt í ljós.

Þar komst hún meðal annars að því að þessar plöntur eru iðulega alveg ævintýralega fallegar og mikil prýði að þeim bæði inni og úti. Einnig skoðaði Vala hvaða sumarblóm og plöntur eru vinsælastar í ár. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×