Bakarí Jóa Fel gjaldþrota Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. september 2020 13:16 Fréttastofa hefur reynt að ná tali af Jóa Fel árangurslaust undanfarnar vikur.
Bakarísrekstur Jóhannesar Felixssonar, Jóa Fel, er kominn í þrot. Gjaldþrotabeiðni Lífeyrissjóðs verzlunarmanna var samþykkt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Frá þessu greinir Stundin. Krafn um gjaldþrot var lögð fram á grundvelli vangoldinna iðgjalda. Þau hafi verið innheimt af launum starfsfólks en ekki skilað til sjóðsins. Þá mun fyrirtækið ekki hafa greitt mótframlag af launum starfsfólks til lífeyrissjóðsins. Grímur Sigurðsson lögmaður hefur verið skipaður skiptastjóri í þrotabúi Jóa Fel. Hann segir í samtali við Vísi að nú hefjist hefðbundin vinna við að hafa uppi á eignum og lýsa eftir kröfu.Jóhannes Felixson bakari, sem rekið hefur bakarí Jóa Fel undanfarin ár, segist funda stöðugt vegna resktrarerfiðleika bakarísins. Aðeins tvö bakarí eru opin sem stendur en fjórum hefur verið lokað. Útburðarmál vegna ógreiddrar leigu Bakarí Jóa Fel í Holtagörðum, þar sem öll framleiðsla fer fram, og Spönginni eru enn opin samkvæmt upplýsingum úr símsvörun bakaríanna. Bakaríunum við JL-húsið, í Smáralind, Garðabæ og Borgartúni hefur verið lokað. Jói Fel var á fundi með skiptastjóra í Holtagörðum þegar ljósmyndara fréttastofu bar að garði á öðrum tímanum.Vísir/Vilhelm Morgunblaðið greindi frá því í ágúst að eigandi húsnæðis í Borgartúni sem Jói Fel hafði á leigu hefði ákveðið að höfða útburðarmál vegna vangoldinnar leigu. Bakaríinu var lokað um það leyti og svo hinum áðurnefndu í kjölfarið. Jói Fel hefur ekki svarað ítrekuðum símtölum frá fréttastofu undanfarnar vikur. Sagði allt óljóst Bakarinn var fámáll í samtölum við DV og Mannlíf á þriðjudag þar sem hann sagðist hreinlega ekki vita stöðu mála. Eitthvað gæti gerst í vikunni en það væri óljóst. „Ég er bara á fundum alla vikuna, allt er í vinnslu og ég veit ekkert.“ Jói Fel rak bakarí á Selfossi og Hellu sem var lokað í september í fyrra eftir átján mánaða rekstur. Um var að ræða bakaríin Guðni bakari á Selfossi og Kökuval á Hellu sem fóru í þrot. Engar færslur hafa verið á heimasíðu Jóa Fel eða Facebook-síðu undanfarnar fjórar vikur.
Gjaldþrot Veitingastaðir Lífeyrissjóðir Bakarí Smáralind Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira