Óbreyttar samkomutakmarkanir til 9. desember Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. desember 2020 11:38 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra býr sig fyrir viðtöl í Ráðherrabústaðnum í morgun. Engar breytingar verða á aðgerðum hér á landi til 9. desember. Vísir/Vilhelm Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi óbreyttar til 9. desember næstkomandi.
Þetta er gert í samræmi við tillögu Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, sem ræður gegn því að slaka á sóttvörnum núna vegna þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga að því er segir á vef stjórnarráðsins. Reglurnar sem nú eru framlengdar um viku hafa verið við lýði síðan 18. nóvember. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði í viðtali við fréttastofu eftir ríkisstjórnarfund nú í hádeginu að samstaða hafi verið um það í ríkisstjórninni að framlengja aðgerðirnar um viku. Áfram verður tíu manna samkomubann, tveggja metra regla, grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja tvo metra og sundlaugum, líkamsræktarstöðvum, börum og skemmtistöðum er enn gert að hafa lokað. Einnig þýðir þetta að engar breytingar verða gerðar á fjöldatakmörkunum í verslunum en verslunarmenn höfðu kallað eftir því að leyfa 20 viðskiptavini inni í einu og taka meira mæli tillit til stærðar verslana en nú er gert. Aðeins lyfja- og matvöruverslanir mega hafa fleiri en tíu viðskiptavini inni í einu, það er allt að 50 manns, og slíkar verslanir sem eru stærri en þúsund fermetrar mega hleypa inn til viðbótar einum viðskiptavini fyrir tíu fermetra umfram þúsund fermetra. Þó mega viðskiptavinirnir ekki vera fleiri en hundrað. Hugsanlegur veldisvöxtur í greindum smitum hjá fólk utan sóttkvíar Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins er vísað í minnisblað sóttvarnalæknis: „Eins og fram kemur í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 29. nóvember, hafði hann áður gert ráð fyrir að hægt yrði að ráðast í varfærnar tilslakanir á gildandi sóttvarnalögum 2. desember og kynnt ákveðnar hugmyndir þar að lútandi fyrir ráðherra fyrir viku. Sóttvarnalæknir setti þó fyrirvara um að hann áskildi sér rétt til að endurskoða tillögur sínar um tilslakanir ef þróun faraldursins myndi breytast. Fram kemur hjá sóttvarnalækni að undanfarið hafi orðið breytingar á faraldrinum. Upp hafi komið hópsýkingar og smitum fjölgað. Þá virðist fjöldi þeirra sem greinast utan sóttkvíar stefna í línulegan vöxt og hugsanlegan veldisvöxt segir sóttvarnalæknir. Tillaga hans er sú að engar breytingar verði gerðar á gildandi sóttvarnaráðsstöfunum, þ.e. takmörkunum á samkomum og skólastarfi næstu eina til tvær vikur. Við endurskoðun sóttvarnaráðstafana sem hefjast þegar í stað, verður meðal annars horft til þess hvort tilefni sé til að gera tilslakanir á landsbyggðinni umfram höfuðborgarsvæðið í samræmi við hugleiðingar sóttvarnalæknis í meðfylgjandi minnisblaði, dags. 30. nóvember.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Fleiri fréttir Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Sjá meira