Segja bresku lyfjastofnunina vera að íhuga að endurskoða notkun bóluefnisins frá AstraZeneca Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. apríl 2021 09:16 Lyfjastofnun Evrópu mun ákveða á morgun hvort hún mælir áfram með notkun bóluefnisins frá AstraZeneca. epa Breska lyfjastofnunin (MHRA) segir enga ákvörðun hafa verið tekna varðandi breytingar á notkun Covid-19 bóluefnisins frá AztraZeneca en Channel 4 News greindi frá því í gær að verið væri að skoða að hætta notkun bóluefnisins í yngri aldurshópum.
Ástæðan eru tilvik blóðtappamyndunar, sem hafa verið tengd bólusetningu. Fréttastofan hafði eftir tveimur heimildarmönnum að ábendingar væru uppi sem réttlættu að bjóða ungum einstaklingum, að minnsta kosti 30 ára og yngri, annað bóluefni. Báðir heimildarmenn ítrekuðu hins vegar stuðning sinn við bóluefnið frá AstraZeneca og sögðust uggandi yfir því að mögulegar takmarkanir á notkun þess myndu grafa undan trausti almennings til bóluefnisins. June Raine, forstjóri MHRA, sagði í gærkvöldi að engin ákvörðun hefði verið tekin í þessum efnum og hvatti fólk til að þiggja bólusetningu. Neil Ferguson, prófessor við Imperial College London, sagði í samtali við BBC Radio 4 að umrædd tilvik blóðtappa vektu spurningar um það hvort bólusetja ætti ungt fólk með bóluefninu frá AstraZeneca. Hann sagði mögulegt að áhættan væri aldurstengd og þá væru uppi spurningar um hvort hún væri einnig mismikil hjá konum og körlum. Þegar vega ætti ávinninginn og áhættuna af bólusetningu með bóluefninu frá AstraZeneca benti niðurstaðan til þess að elda fólk ætti að láta bólusetja sig en jafnan væri flóknari þegar kæmi að yngra fólki. Breska lyfjastofnunin hefur skráð 30 tilvik blóðtappa, þar af sjö dauðsföll, en 18,1 milljón skammtar af bóluefninu höfðu verið gefnir 24. mars. Frétt Guardian um málið.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Erlent Fleiri fréttir Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Sjá meira