Áttar sig ekki á því af hverju fólk afþakkar AstraZeneca Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. febrúar 2021 18:44 Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði og yfirlæknir ónæmislækninga á Landspítalanum. Vísir/Egill Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði og yfirlæknir ónæmislækninga á Landspítalanum, segir öll bóluefni við Covid-19 sem komið hafa fram jafngóð. Enginn marktækur munur sé á þeim með tilliti til aukaverkana. Hann segist ekki átta sig á því af hverju fólk hafi hafnað bólusetningu með bóluefni AstraZeneca.
Talsvert hefur borið á því undanfarið að fólk afþakki bólusetningu með bóluefni AstraZeneca á þeim grundvelli að efnið sé ekki jafn virkt og önnur bóluefni, auk þess sem fólk telji aukaverkanir AstraZeneca meiri en af hinum bóluefnunum. Bóluefni frá þremur framleiðendum hafa fengið samþykki hér á landi; AstraZeneca, Pfizer og Moderna. Björn Rúnar var spurður út í muninn á bóluefnunum með tilliti til aukaverkana í þættinum Reykjavík síðdegis í dag. „Fyrir það fyrsta er virkni þessara bóluefna örugglega jafngóð þegar allt verður skoðað þannig að fólk verður að muna eftir því. Þegar kemur að tíðni aukaverkana er ekkert sem hefur enn sýnt sig að það sé marktækur munur á algengi aukaverkana eftir þessi bóluefni,“ sagði Björn. „Þau eru öll jafngóð og jafnörugg og fólk á bara að stökkva á vagninn og fá bólusetningu um leið og tækifæri gefst.“ Fékk sjálfur vægar aukaverkanir Hluti fólks fái vægar aukaverkanir, sérstaklega eftir fyrri bólusetninguna, og þá hafi komið fram mjög sjaldgæfar aukaverkanir á þriðja til fimmta degi. „En þær eru gríðarlega fátíðar og hafa gengið allar yfir á einum til tveimur dögum. Það gætu til dæmis verið útbrot eða meiri vöðvaverkir og hiti og slappleiki,“ sagði Björn. „Ég sjálfur er búinn að fá tvær, ég varð smá slappur og fékk smá hita í sólarhring eftir seinni bólusetninguna, ég fann ekki fyrir fyrri, og það var ekki AstraZeneca-bóluefnið. En það gekk yfir og á þriðja degi var ég orðinn fínn.“ Hefðir þú orðið spældur ef þú hefðir ekki fengið þessar aukaverkanir? „Það hefði staðfest það að ég sé að verða aldraður vegna þess að við vitum það að þessir öldruðu, þeir sem eru komnir sérstaklega yfir sjötugt, það er fátíðara að þeir fái þessar aukaverkanir.“ Hvað heldur þú að valdi því að fólk sé á þessari skoðun? „Ég hreinlega átta mig ekki á því og það er eiginlega hálfgerð ráðgáta. […] Þetta er grafalvarlegt mál og við búum í ótrúlega mikilli náðarkúlu og forréttindum, að hér eru nánast engin smit. Það er náttúrulega stórkostlegur árangur. Og ég held að þá verði fólk værukært. En það gleymir því að það er að verja sig fyrir því að það getur blossað upp aftur og það getur gert það mjög hratt og mjög fljótt.“
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Bóluefni Janssen metið öruggt og með góða virkni Bandaríska lyfjaeftirlitið segir að bóluefnið frá Janssen sé öruggt í notkun og með góða virkni gegn kórónuveirunni. Eftirlitið hefur nú lokið rannsóknum sínum á efninu og er búist við því að það fái markaðsleyfi í Bandaríkjunum á allra næstu dögum. 25. febrúar 2021 07:29 Tæplega sex þúsund einstaklingar bólusettir í þessari viku Til stendur að bólusetja tæplega sex þúsund einstaklinga gegn Covid-19 í þessari viku sem er svipaður fjöldi og í vikunni á undan. 10.530 hafa nú lokið bólusetningu hér á landi og 6.702 til viðbótar fengið fyrri bólusetningu. 22. febrúar 2021 13:28 Mótmæltu fyrirhuguðum bólusetningum Mótmælendur komu saman í borgum víða um Ástralíu í dag og mótmæltu bólusetningum gegn Covid-19, en stefnt er að því að hefja bólusetningar á mánudag með bóluefni Pfizer. Mótmælin voru að mestu friðsæl en nokkrir voru þó handteknir í Melbourne samkvæmt staðarmiðlum. 20. febrúar 2021 23:19 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Bóluefni Janssen metið öruggt og með góða virkni Bandaríska lyfjaeftirlitið segir að bóluefnið frá Janssen sé öruggt í notkun og með góða virkni gegn kórónuveirunni. Eftirlitið hefur nú lokið rannsóknum sínum á efninu og er búist við því að það fái markaðsleyfi í Bandaríkjunum á allra næstu dögum. 25. febrúar 2021 07:29
Tæplega sex þúsund einstaklingar bólusettir í þessari viku Til stendur að bólusetja tæplega sex þúsund einstaklinga gegn Covid-19 í þessari viku sem er svipaður fjöldi og í vikunni á undan. 10.530 hafa nú lokið bólusetningu hér á landi og 6.702 til viðbótar fengið fyrri bólusetningu. 22. febrúar 2021 13:28
Mótmæltu fyrirhuguðum bólusetningum Mótmælendur komu saman í borgum víða um Ástralíu í dag og mótmæltu bólusetningum gegn Covid-19, en stefnt er að því að hefja bólusetningar á mánudag með bóluefni Pfizer. Mótmælin voru að mestu friðsæl en nokkrir voru þó handteknir í Melbourne samkvæmt staðarmiðlum. 20. febrúar 2021 23:19