Staðfestu sýknu Kópavogsbæjar í Vatnsendamálinu Ólafur Björn Sverrisson skrifar 23. maí 2023 14:34 Kópavogsbær greiddi Þorsteini Hjaltested 2,25 milljarða í eignarnámsbætur árið 2007 þegar hundruð hektarar voru teknir eignarnámi og varð hann skattakóngur Íslands í kjölfarið, árin 2010 og 2011. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu árið 2013 að Þorsteinn væri ekki eigandi jarðarinnar. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur staðfesti í dag sýknu Kópavogsbæjar í langdregnu Vatnsendamáli, þar sem hluti erfingja Sigurðar K. Hjaltested krafðist 75 milljarða króna vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007.
Árið 2020 var Kópavogsbær dæmdur í héraði til að greiða dánarbúi Sigurðar 968 milljónir vegna eignarnáms bæjarins í landi Vatnsenda árið 2007. Kópavogsbær áfrýjaði þeim dómi til Landsréttar, sem sýknaði sveitarfélagið af öllum kröfum erfingjanna. Í kjölfarið óskuðu erfingjarnir eftir áfrýjunarleyfi frá Hæstarétti, sem varð við þeirri beiðni í september á síðasta ári. Nú hefur Hæsiréttur, eins og áður segir staðfest sýknudóm Landsréttar. Alls kröfðust erfingjar Sigurðar tæplega 75 milljarða króna. Forsaga málsins er erfðaskrá frá árinu 1938 þar sem föðurbróðir Sigurðar arfleiddi hann að jörðinni Vatnsenda með ritun erfðaskrár. Samkvæmt ákvæðum erfðarskrárinnar skyldi jörðin að Sigurði látnum ganga að erfðum til elsta sonar hans og svo til niðja hans í beinan karllegg. Magnús, elsti sonur Sigurðar, fékk svo umráða- og ábúandarétt yfir jörðinni þegar Sigurður lést 1966 samkvæmt skilmálum erfðaskrárinnar. Önnur börn Sigurðar fengu ekki afnot af jörðinni og afkomendur Magnúsar, sem er Þorsteinn Hjaltested meðal annarra, fengu svo jörðina í sínar hendur og greiðslur frá Kópavogsbæ vegna byggingarlands. Með dómi Hæstaréttar árið 2013 var staðfest að Magnús hefði eingöngu haft búseturétt á jörðinni en ekki beinan eignarrétt. Jörðin væri þar með réttmæt eign dánarbús Sigurðar K. Hjaltested. Sá hæstaréttardómur er einn þeirra mýmörgu dóma á æðra dómstigi sem gengið hafa í málinu. Dánarbúið réttmætur eigandi án fjárgildis Nú var því deilt um hvort dánarbúið ætti sem handhafi beins eignarréttar að Vatnsenda rétt til bótanna sem áður höfðu verið greiddar ábúendum jarðarinnar, þar á meðal Þorsteini. Kröfur vegna eignarnáms árin 1992, 1998 og 2000 voru taldar fyrndar. Varðandi eignarnámið árið 2007 Í dómi Hæstaréttar var komist að þeirri niðurstöðu að beinn eignarréttur Vatsenda sem Sigurður hefði hlotið með erfðaskránni frá 1938 hefði verið formlegs eðlis, án fjárgildis og því verðlaus í höndum rétthafans frá upphafi. Rétturinn sem nú væri á höndum dánarbúsins yrði því ekki metinn til fjár á peningalegan mælikvarða og hefðu áfrýjendur því ekki orðið fyrir fjártjóni við eignarnámið 2007. Var Kópavogsbær því sýknaður af kröfum áfrýjenda.
Deilur um Vatnsendaland Kópavogur Dómsmál Tengdar fréttir Fá milljarð frá Kópavogi vegna eignarnáms á Vatnsenda Kópavogsbær hefur verið dæmdur til að greiða dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested 968 milljónir vegna eignarnáms Kópavogsbæjar í landi Vatnsenda árið 2007. Dómur var kveðinn upp í gær. Vextir frá árinu 2010 bætast við fyrrnefnda upphæð. 22. desember 2020 13:41 75 milljarða krafa vofir yfir Kópavogi Eigendur Vatnsendajarðarinnar í málaferlum við Kópavogsbæ sem hefur beðið um frest. 20. mars 2015 12:03 Þorsteinn Hjaltested ekki eini réttmæti erfingi Vatnsendajarðarinnar Hæstiréttur felldi úr gildi dóm héraðsdóms. 5. mars 2015 16:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Sjá meira
Fá milljarð frá Kópavogi vegna eignarnáms á Vatnsenda Kópavogsbær hefur verið dæmdur til að greiða dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested 968 milljónir vegna eignarnáms Kópavogsbæjar í landi Vatnsenda árið 2007. Dómur var kveðinn upp í gær. Vextir frá árinu 2010 bætast við fyrrnefnda upphæð. 22. desember 2020 13:41
75 milljarða krafa vofir yfir Kópavogi Eigendur Vatnsendajarðarinnar í málaferlum við Kópavogsbæ sem hefur beðið um frest. 20. mars 2015 12:03
Þorsteinn Hjaltested ekki eini réttmæti erfingi Vatnsendajarðarinnar Hæstiréttur felldi úr gildi dóm héraðsdóms. 5. mars 2015 16:41