Sebastian: Bara lúserar sem hætta og við erum ekki lúserar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. september 2021 20:33 Sebastian Alexandersson ræðir við sína menn. vísir/vilhelm Sebastian Alexandersson, þjálfari HK, var nokkuð brattur þrátt fyrir tap fyrir KA, 25-28, í kvöld. Sigur KA-manna var öruggari en lokatölurnar gefa til kynna en HK-ingar skoruðu síðustu sex mörk leiksins. „Við vildum vinna en við gerum okkur grein fyrir því að flestir andstæðingarnir í þessari deild eru betri en við. Við þurfum að gera færri mistök ef við ætlum að eiga möguleika á stigum. Það var margt rosalega jákvætt og miklar framfarir frá síðasta leik á föstudaginn,“ sagði Sebastian og vísaði til tapsins fyrir Fram í Coca Cola bikarnum. „Það er eitthvað til að taka með sér inn í framhaldið, ekki það að ég hlakki brjálæðislega til að mæta Val í næsta leik. En það þarf víst að spila við þá líka,“ sagði Sebastian en HK sækir Íslandsmeistarana heim eftir viku. Þjálfarinn var nokkuð sáttur við varnarleik HK í kvöld. „Mér fannst við standa vörnina á löngum köflum vel. Við lokuðum á margt af því sem KA reyndi að gera en þeir eru bara með svo færa einstaklinga. Þeir fengu höndina oft upp sem var gott hjá okkur. Svo vorum við pínu óheppnir, skutum í stangirnar og slánna. Svo komu nokkrar ákvarðanir sem þarf að endurskoða. Það mun taka okkur smá tíma að ráða við að spila á þessum hraða.“ HK lenti mest níu mörkum undir en hætti ekki og lagaði stöðuna verulega undir lokin. „Af hverju eigum við að hætta? Það eru bara lúserar sem hætta og við erum ekki lúserar,“ sagði Sebastian. Sigurjón Guðmundsson átti stórleik í marki HK og varði 21 skot. „Hann byrjaði illa, Róbert [Örn Karlsson] fór að hita upp og þá hrökk hann í gang. Svo um leið og hann hætti að verja stóð hinn upp og þá fór hann aftur í gang. Það sýnir vilja til að vera inni á og ég er hrikalega ánægður með það,“ sagði Sebastian. HK átti ekki mikla möguleika í bikarleiknum gegn Fram en frammistaðan í kvöld var öllu betri. „Þá var eins og við værum í miðri loftárás í stríði, alveg í losti. En í seinni hálfleik fannst mér við miklu betri en Fram þótt þeir hafi kannski slakað aðeins á. Mér fannst við sýna flotta frammistöðu, verðuga fyrir Olís-deildina og það er hellingur sem við getum bætt okkur í. Þetta er eitthvað til að byggja á en jesús minn, ég ætla ekki að fara að halda eitthvað partí fyrir þetta. Það er brjáluð vinna framundan,“ sagði Sebastian að lokum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla HK Tengdar fréttir Umfjöllun: HK - KA 25-28 | KA-sigur í Kórnum þrátt fyrir stórleik Sigurjóns KA sigraði HK, 25-28, í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Sigur KA-manna var nokkuð öruggur en þeir komust mest níu mörkum yfir. HK-ingar löguðu stöðuna undir lokin. 16. september 2021 20:30 Mest lesið Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Handbolti Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti United lyfti sér upp að hlið Newcastle Enski boltinn McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Fótbolti Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Fótbolti Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Íslenski boltinn Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Körfubolti Skaut á Taylor Swift og sagði konum að halda sig í eldhúsinu Sport Fleiri fréttir Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Sjá meira
„Við vildum vinna en við gerum okkur grein fyrir því að flestir andstæðingarnir í þessari deild eru betri en við. Við þurfum að gera færri mistök ef við ætlum að eiga möguleika á stigum. Það var margt rosalega jákvætt og miklar framfarir frá síðasta leik á föstudaginn,“ sagði Sebastian og vísaði til tapsins fyrir Fram í Coca Cola bikarnum. „Það er eitthvað til að taka með sér inn í framhaldið, ekki það að ég hlakki brjálæðislega til að mæta Val í næsta leik. En það þarf víst að spila við þá líka,“ sagði Sebastian en HK sækir Íslandsmeistarana heim eftir viku. Þjálfarinn var nokkuð sáttur við varnarleik HK í kvöld. „Mér fannst við standa vörnina á löngum köflum vel. Við lokuðum á margt af því sem KA reyndi að gera en þeir eru bara með svo færa einstaklinga. Þeir fengu höndina oft upp sem var gott hjá okkur. Svo vorum við pínu óheppnir, skutum í stangirnar og slánna. Svo komu nokkrar ákvarðanir sem þarf að endurskoða. Það mun taka okkur smá tíma að ráða við að spila á þessum hraða.“ HK lenti mest níu mörkum undir en hætti ekki og lagaði stöðuna verulega undir lokin. „Af hverju eigum við að hætta? Það eru bara lúserar sem hætta og við erum ekki lúserar,“ sagði Sebastian. Sigurjón Guðmundsson átti stórleik í marki HK og varði 21 skot. „Hann byrjaði illa, Róbert [Örn Karlsson] fór að hita upp og þá hrökk hann í gang. Svo um leið og hann hætti að verja stóð hinn upp og þá fór hann aftur í gang. Það sýnir vilja til að vera inni á og ég er hrikalega ánægður með það,“ sagði Sebastian. HK átti ekki mikla möguleika í bikarleiknum gegn Fram en frammistaðan í kvöld var öllu betri. „Þá var eins og við værum í miðri loftárás í stríði, alveg í losti. En í seinni hálfleik fannst mér við miklu betri en Fram þótt þeir hafi kannski slakað aðeins á. Mér fannst við sýna flotta frammistöðu, verðuga fyrir Olís-deildina og það er hellingur sem við getum bætt okkur í. Þetta er eitthvað til að byggja á en jesús minn, ég ætla ekki að fara að halda eitthvað partí fyrir þetta. Það er brjáluð vinna framundan,“ sagði Sebastian að lokum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla HK Tengdar fréttir Umfjöllun: HK - KA 25-28 | KA-sigur í Kórnum þrátt fyrir stórleik Sigurjóns KA sigraði HK, 25-28, í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Sigur KA-manna var nokkuð öruggur en þeir komust mest níu mörkum yfir. HK-ingar löguðu stöðuna undir lokin. 16. september 2021 20:30 Mest lesið Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Handbolti Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti United lyfti sér upp að hlið Newcastle Enski boltinn McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Fótbolti Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Fótbolti Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Íslenski boltinn Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Körfubolti Skaut á Taylor Swift og sagði konum að halda sig í eldhúsinu Sport Fleiri fréttir Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Sjá meira
Umfjöllun: HK - KA 25-28 | KA-sigur í Kórnum þrátt fyrir stórleik Sigurjóns KA sigraði HK, 25-28, í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Sigur KA-manna var nokkuð öruggur en þeir komust mest níu mörkum yfir. HK-ingar löguðu stöðuna undir lokin. 16. september 2021 20:30