Páll gefst ekki upp og blæs til söfnunar Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 26. mars 2023 12:27 Arnar Þór Ingólfsson, Páll Vilhjálmsson og Þórður Snær Júlíusson. Vísir Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, hefur sett af stað söfnun fyrir málskostnaði vegna áfrýjunar til Landsréttar. Páll var í vikunni dæmdur til að greiða blaðamönnum Kjarnans miskabætur vegna ummæla sem hann lét falla í tengslum við Samherjamálið. „Tilfallandi bloggari var fyrir helgi dæmdur til að greiða tveim blaðamönnum RSK-miðla um 1,5 m.kr. vegna bloggskrifa um aðild RSK-miðla að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma. […] Tjáningarfrelsið er sem sagt fyrir fáeina útvalda. Þeir sem andæfa ráðandi frásögn fjölmiðla og vekja athygli á lögleysunni hljóta verra af - til dæmis málssókn. Dómnum frá föstudag verður áfrýjað enda tekur engu tali að ekki megi segja á opinberum vettvangi að málsaðilar eigi aðild, beina eða óbeina,“ segir Páll Vilhjálmsson á bloggsíðu sinni. Byrlun og stuldur á síma Þeir Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, og Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður sama miðils, stefndu Páli fyrir meiðyrði og kröfðust ómerkingar á tvennum ummælum á bloggsíðu hans á vefsvæði mbl.is Ummælin sem Páll lét falla, og dæmd voru ómerk, voru af tvennum toga. Annars vegar voru það ummæli um að tvímenningarnir hefðu átt „aðild, beina eða óbeina“ að því að Páli Steingrímssyni, skipstjóra hjá Samherja, hefði verið byrlað og síma hans stolið. Hins vegar voru það ummæli Páls um að saksóknari gæfi út ákæru á hendur blaðamönnunum. Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson, blaðamenn á Kjarnanum, ... eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Saksóknari mun gefa út ákæru á hendur blaðamönnum RSK-miðla, líklega í september Páll Vilhjálmsson hefur ítrekað fjallað um málið og ýjað að því að Þórður Snær og Arnar Þór hafi átt þátt í að Páli skipstjóra var byrlað og síma hans stolið. Héraðsdómari taldi Pál hafa farið út fyrir mörk leyfilegrar tjáningar og ummælin því dæmd ómerk. Mat dómsins væri að um ærumeiðandi aðdróttun hafi verið að ræða, og í ummælunum fælist ólögmæt meingerð, sem væri þar af leiðandi skaðabótaskyld. „RSK-miðlar, RÚV, Stundin og Kjarninn (nú Heimildin) eru fjármagnaðir af ríkinu. RÚV er á fjárlögum og Heimildin fær fjölmiðlastyrk úr ríkissjóði. Tilfallandi bloggari er launamaður. Lesendur hafa haft samband og spurt hvernig mætti leggja tilfallandi athugasemdum lið með fjárframlagi vegna málskostnaðar,“ segir Páll á bloggsíðu sinni að lokum, og bendir á þartilgerðan styrktarreikning. Fjölmiðlar Dómsmál Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Páll dæmdur fyrir ummæli um Heimildarmenn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ómerkt ummæli sem Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, lét falla um blaðamenn Kjarnans. Páll hélt því fram að blaðamennirnir hefðu átt þátt í byrlun og þjófnaði í tengslum við umfjöllun um leynilega áhrifaherferð sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja. 24. mars 2023 14:05 Segir móðgun við heilbrigða skynsemi að draga orð sín til baka Í morgun var aðalmeðferð í meiðyrðamáli blaðamanna Heimildarinnar, áður Kjarnans, þeirra Þórðar Snæs Júlíussonar og Arnars Þórs Ingólfssonar á hendur Páli Vilhjálmssyni. 27. febrúar 2023 15:31 „Ég er orðinn ýmsu vanur en þetta sló mig verulega“ Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar, áður Kjarnans, sagðist fyrir dómi í morgun aldrei hafa hitt Pál Steingrímsson skipsstjóra, aldrei stolið af honum síma, né hefði hann átt beinan eða óbeinan þátt í að byrla honum né nokkrum manni. Þá sagði hann skýrslu réttarmeinafræðings sýna fram á að Páli hefði í raun aldrei verið byrlað. Verjandi Páls Vilhjálmssonar sagði málið ekki flókið og að það snérist um tjáningarfrelsi. 27. febrúar 2023 14:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Innlent Fleiri fréttir Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Sjá meira
„Tilfallandi bloggari var fyrir helgi dæmdur til að greiða tveim blaðamönnum RSK-miðla um 1,5 m.kr. vegna bloggskrifa um aðild RSK-miðla að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma. […] Tjáningarfrelsið er sem sagt fyrir fáeina útvalda. Þeir sem andæfa ráðandi frásögn fjölmiðla og vekja athygli á lögleysunni hljóta verra af - til dæmis málssókn. Dómnum frá föstudag verður áfrýjað enda tekur engu tali að ekki megi segja á opinberum vettvangi að málsaðilar eigi aðild, beina eða óbeina,“ segir Páll Vilhjálmsson á bloggsíðu sinni. Byrlun og stuldur á síma Þeir Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, og Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður sama miðils, stefndu Páli fyrir meiðyrði og kröfðust ómerkingar á tvennum ummælum á bloggsíðu hans á vefsvæði mbl.is Ummælin sem Páll lét falla, og dæmd voru ómerk, voru af tvennum toga. Annars vegar voru það ummæli um að tvímenningarnir hefðu átt „aðild, beina eða óbeina“ að því að Páli Steingrímssyni, skipstjóra hjá Samherja, hefði verið byrlað og síma hans stolið. Hins vegar voru það ummæli Páls um að saksóknari gæfi út ákæru á hendur blaðamönnunum. Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson, blaðamenn á Kjarnanum, ... eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Saksóknari mun gefa út ákæru á hendur blaðamönnum RSK-miðla, líklega í september Páll Vilhjálmsson hefur ítrekað fjallað um málið og ýjað að því að Þórður Snær og Arnar Þór hafi átt þátt í að Páli skipstjóra var byrlað og síma hans stolið. Héraðsdómari taldi Pál hafa farið út fyrir mörk leyfilegrar tjáningar og ummælin því dæmd ómerk. Mat dómsins væri að um ærumeiðandi aðdróttun hafi verið að ræða, og í ummælunum fælist ólögmæt meingerð, sem væri þar af leiðandi skaðabótaskyld. „RSK-miðlar, RÚV, Stundin og Kjarninn (nú Heimildin) eru fjármagnaðir af ríkinu. RÚV er á fjárlögum og Heimildin fær fjölmiðlastyrk úr ríkissjóði. Tilfallandi bloggari er launamaður. Lesendur hafa haft samband og spurt hvernig mætti leggja tilfallandi athugasemdum lið með fjárframlagi vegna málskostnaðar,“ segir Páll á bloggsíðu sinni að lokum, og bendir á þartilgerðan styrktarreikning.
Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson, blaðamenn á Kjarnanum, ... eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Saksóknari mun gefa út ákæru á hendur blaðamönnum RSK-miðla, líklega í september
Fjölmiðlar Dómsmál Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Páll dæmdur fyrir ummæli um Heimildarmenn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ómerkt ummæli sem Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, lét falla um blaðamenn Kjarnans. Páll hélt því fram að blaðamennirnir hefðu átt þátt í byrlun og þjófnaði í tengslum við umfjöllun um leynilega áhrifaherferð sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja. 24. mars 2023 14:05 Segir móðgun við heilbrigða skynsemi að draga orð sín til baka Í morgun var aðalmeðferð í meiðyrðamáli blaðamanna Heimildarinnar, áður Kjarnans, þeirra Þórðar Snæs Júlíussonar og Arnars Þórs Ingólfssonar á hendur Páli Vilhjálmssyni. 27. febrúar 2023 15:31 „Ég er orðinn ýmsu vanur en þetta sló mig verulega“ Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar, áður Kjarnans, sagðist fyrir dómi í morgun aldrei hafa hitt Pál Steingrímsson skipsstjóra, aldrei stolið af honum síma, né hefði hann átt beinan eða óbeinan þátt í að byrla honum né nokkrum manni. Þá sagði hann skýrslu réttarmeinafræðings sýna fram á að Páli hefði í raun aldrei verið byrlað. Verjandi Páls Vilhjálmssonar sagði málið ekki flókið og að það snérist um tjáningarfrelsi. 27. febrúar 2023 14:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Innlent Fleiri fréttir Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Sjá meira
Páll dæmdur fyrir ummæli um Heimildarmenn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ómerkt ummæli sem Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, lét falla um blaðamenn Kjarnans. Páll hélt því fram að blaðamennirnir hefðu átt þátt í byrlun og þjófnaði í tengslum við umfjöllun um leynilega áhrifaherferð sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja. 24. mars 2023 14:05
Segir móðgun við heilbrigða skynsemi að draga orð sín til baka Í morgun var aðalmeðferð í meiðyrðamáli blaðamanna Heimildarinnar, áður Kjarnans, þeirra Þórðar Snæs Júlíussonar og Arnars Þórs Ingólfssonar á hendur Páli Vilhjálmssyni. 27. febrúar 2023 15:31
„Ég er orðinn ýmsu vanur en þetta sló mig verulega“ Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar, áður Kjarnans, sagðist fyrir dómi í morgun aldrei hafa hitt Pál Steingrímsson skipsstjóra, aldrei stolið af honum síma, né hefði hann átt beinan eða óbeinan þátt í að byrla honum né nokkrum manni. Þá sagði hann skýrslu réttarmeinafræðings sýna fram á að Páli hefði í raun aldrei verið byrlað. Verjandi Páls Vilhjálmssonar sagði málið ekki flókið og að það snérist um tjáningarfrelsi. 27. febrúar 2023 14:36