„Metnaðurinn var mikill og framfarirnar ótrúlega hraðar“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. júlí 2022 19:30 Markmannsþjálfarinn Þorsteinn Magnússon er viss um það að Cecilía Rán taki við aðalmarkmannsstöðunni í íslenska landsliðinu á næstu misserum. Vísir/Sigurjón Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur samið við stórlið Bayern München til ársins 2026 í þýska boltanum. Markmannsþjálfarinn Þorsteinn Magnússon segir að liðið hafi lengi verið á eftir Cecilíu, sem á framtíðina fyrir sér í íslenska landsliðinu. „
Bayern München var á eftir henni fyrir tveimur árum og þeir vildu fá hana til að spila með 19 ára liðinu. En eftir góðan fund þá töldum við það ekki vera það skref sem við töldum vera best fyrir hana þannig það var slegið af borðinu,“ sagði markmannsþjálfarinn Þorsteinn Magnússon í samtali við Stöð 2 í dag. „Bianca, sem er svona „sports director“ þarna, hún bara elskar hana og var að fylgjast með henni og hringja í mann og spurjast fyrir um hana einu sinni í mánuði liggur við. Þannig að þetta kemur ekkert á óvart.“ Hin 18 ára gamla Cecilía Rán er hluti af íslenska landsliðshópnum sem mætir til leiks á EM kvenna í knattpyrnu þann 10. júlí. Hún gekk í raðir Bayern í janúar á þessu ári, en þá á láni frá enska félaginu Everton. Áður hafði hún verið á láni hjá Örebro í Svíþjóð eftir að hafa spilað frábærlega með Fylki hér á landi. Þorsteinn þjálfaði Cecilíu fyrst þegar hún var mjög ung, en hann segist fljótlega hafa séð hvað í henni bjó. „Það var eiginlega það fyrsta sem ég horfði á var stærðin. Fyrstu tvo mánuðina gerði maður sér grein fyrir því hvað hún gæti orðið og þá varð ég að setjast niður og byrja að skipuleggja hvernig við myndum þjálfa hana af því að það er mjög erfitt að þjálfa svona háa markmenn.“ „En sem betur fer þá var hún að bregðast vel við öllu og tók þetta all-in. Það skipti ekki máli hvort það var laugardagur eða mánudagur, eða hvort að það var sól eða rigning eða snjókoma. Við vorum úti fjóra til sex daga vikunnar. Metnaðurinn var mikill og framfarirnar ótrúlega hraðar.“ Cecilía á að baki 24 leiki með yngri landsliðum Íslands og átta með A-landsliðinu. Aðspurður að því hvort Cecilía sé framtíðarmarkvörður íslenska landsliðsins var Þorsteinn ekki lengi að svara. „Já,“ sagði Þorsteinn að lokum, viss í sinni sök. Klippa: Cecilía Rán semur við Bayern til 2026
Fótbolti Þýski boltinn Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Handbolti Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Íslenski boltinn Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Enski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Sú Besta, stórleikur á Englandi, úrslitakeppni NBA og margt fleira Sport „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ Körfubolti Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Enski boltinn Fyrrverandi hirti fernu-boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Besta-spáin 2024: Fiðringur í Firðinum Fyrrverandi hirti fernu-boltann Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Garnacho búinn að biðjast afsökunar Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ ÍA kynnir Rúnar Má til leiks Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjörnumenn komnir á blað Martínez missir af fyrri undanúrslitaleiknum vegna leikbanns Albert komst ekki á blað gegn Lazio Íslandsmeistararnir sóttu bakvörð til Bandaríkjanna Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Xabi Alonso tók metið af Conte Sería A örugg með fimm Meistaradeildarsæti Besta-spáin 2024: Brakar í heila prófessorsins Nagelsmann framlengir samning sinn við þýska landsliðið Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Sjá meira