Fótbolti

Zlatan táraðist á kveðju­stundinni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Stuðningsmenn Milan kvöddu Zlatan Ibrahimovic á fallegan hátt.
Stuðningsmenn Milan kvöddu Zlatan Ibrahimovic á fallegan hátt. Vísir/Getty

Síðustu leikirnir í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þessu tímabili fara fram nú í kvöld. Stuðningsmenn AC Milan kvöddu Zlatan Ibrahimovic fyrir leik liðsins gegn Verona.

Það var nýverið ljóst að Zlatan Ibrahimovic myndi ekki framlengja samning sinn við AC Milan sem rennur út nú i sumar. Zlatan hefur leikið með Milan síðan árið 2019 en hann var einnig á mála hjá félaginu árin 2010-2012, fyrst á láni frá Barcelona en Milan festi kaup á honum seinna tímabilið.

Zlatan hefur verið frá vegna meiðsla síðustu vikurnar en það stoppaði þó ekki stuðningsmenn AC Milan í því að kveðja Svíann almennilega. Í stúkunni mátti sjá textann „GODBYE“ skrifaðan stórum stöfum og sungu stuðningsmenn síðan til heiðurs Ibrahimovic.

Þegar myndavélarnar beindust að Zlatan og konu hans í stúkunni mátti sjá að sá sænski var augljóslega hrærður yfir móttökunum. Hann hefur alls skorað 76 mörk í 123 leikjum fyrir ítalska stórveldið og vann ítalska meistaratitilinn með félaginu árið 2012 og svo aftur á síðasta ári.

Hinn 41 árs gamli Ibrahimovic hefur enn ekki gefið út hvort hann muni halda áfram að leika knattspyrnu en hann hefur meðal annars verið orðaður við Monza sem leikur í Serie A.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×