Saksóknari fær frest til að ákveða með ákæru í hryðjuverkamáli Kjartan Kjartansson skrifar 20. mars 2023 15:07 Karl Ingi Vilbergsson er saksóknari í hryðjuverkamálinu svonefnda sem snýst þó þessa stundina aðallega um vopnalagabrot eftir að dómstólar vísuðu hryðjuverkahluta ákærunnar frá. Vísir/Vilhelm Héraðssaksóknari fékk sjö vikna frest til þess að taka afstöðu til þess hvort gefin verði út ný ákæra í máli gegn tveimur karlmönnum sem hann sakaði um tilraun til hryðjuverka. Verjandi annars mannanna segir að koma verði í ljós hvort saksóknara takist að semja ákæru sem haldi vatni.
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði frá köflum ákæru á hendur mönnunum tveimur sem fjölluðu um hryðjuverk í síðasta mánuði. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu í þarsíðustu viku. Eftir standa ákæruliðir vegna vopnalagabrota á hendur þeim báðum og vegna fíkniefnabrots og brots á lyfjalögum á hendur öðrum þeirra. Mennirnir tveir hafa játað vopnalagabrotin að hluta. Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, segir við Vísi að hann hafi óskað eftir fresti til þess að taka afstöðu til þess hvort hann gefi út nýja ákæru í málinu þegar það var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Dómari veitti frest til 8. maí. Samkvæmt lögum hefur ákæruvaldið þrjá mánuði til þess að gefa út nýja ákæru. Saksóknari vildi ekki tjá sig um hversu líklegt hann teldi að gefin yrði út ný ákæra. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi annars mannanna, segir að verjendurnir nýti nú tímann og vinni greinargerðir um vopnalagabrotahluta ákærunnar. Þeir hafi ekki gert athugasemdir við að saksóknari fengi frest til að gera upp hug sinn. „Ég get vel skilið að það þurfi langa tíma því það er alls ekki einfalt að búa til ákæru sem nær einhvern veginn að halda vatni,“ segir Sveinn Andri sem hefur verið afar gagnrýninn á meðferð lögreglu og saksóknara á málinu mannanna tveggja.
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Innlent „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Innlent Fleiri fréttir Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning Sjá meira