Voru ekki send strax í sóttkví þrátt fyrir fjölda smitaðra um borð Eiður Þór Árnason og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 27. júlí 2021 18:00 Hópur stúdenta frá Flensborgarskólanum greindist með Covid-19 eftir heimkomu frá Krít. Samsett Mistök leiddu til þess að hluti farþega um borð í flugi frá Krít var ekki sendur strax í sóttkví þegar fjöldi útskriftarnema frá Flensborgarskólanum greindist með Covid-19.
Yfir 30 stúdentar hafa greinst eftir heimkomuna úr útskriftarferðinni á föstudag. Hópurinn flaug til landsins á vegum Heimsferða og deildi leiguvél með öðrum farþegum ferðaskrifstofunnar og Úrval Útsýns. Heimsferðir upplýstu farþega sína um það á laugardag að þeir þyrftu að fara í sóttkví vegna smitanna. Á svipuðum tíma voru um tuttugu farþegar Úrval Útsýns einungis hvattir til að fara í sýnatöku. Það var loks seint á sunnudagskvöld sem réttum skilaboðum var komið áleiðis til þeirra. Ekki upplýst um hina farþeganna Samkvæmt heimildum fréttastofu var rakningateymið ekki upplýst um það strax í upphafi að farþegar frá Úrval Útsýn hafi verið um borð í umræddri vél. Leiddi þetta misræmi til mikillar óvissu meðal viðskiptavina ferðaskrifstofunnar. Tveir farþegar sem Vísir ræddi við fóru í sjálfskipaða sóttkví eftir að þeir fréttu að sessunautur þeirra hafi greinst með Covid-19. Þeir fengu loks tilkynningu frá Úrval Útsýn á ellefta tímanum á sunnudagskvöld um að þeim bæri að fara í sóttkví. Áttu ekki eftir að fá símtal Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, segir um að ræða misskilning sem búið sé að leiðrétta en ekki stóð til að rakningateymið myndi hringja í umrædda farþega. Samkvæmt núgildandi verklagi teymisins er það látið duga við slíkar aðstæður að koma boðum um sóttkví áfram í gegnum ferðaskrifstofu eða flugfélag. Hjördís telur ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af því að töfin auki hættuna á því að stærsta hópsmit þessarar bylgju nái frekari útbreiðslu. „Við höfum ekki beint áhyggjur af því en auðvitað hefði verði gott ef allir hefðu fengið sömu skilaboð strax.” Umfang smitrakningar að aukast Hjördís segir gríðarlegt vera á rakningateyminu þessa daganna en fjölgun innanlandssmita náði hámarki í gær þegar 123 smit greindust. Hafa aldrei fleiri greinst hérlendis á einum degi frá því að faraldurinn braust út. Almannavarnir vonast til að nýlegar samkomutakmarkanir komi til með að einfalda smitrakningu. Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval Útsýns, hefur ekki gefið kost á viðtali vegna málsins. Ekki hefur náðst í Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóra Heimsferða.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Fréttir af flugi Ferðalög Tengdar fréttir Minnst 30 nemendur Flensborgar með Covid-19 eftir útskriftarferð Síðustu daga hafa 30 útskriftarnemendur Flensborgarskólans greinst með Covid-19 eftir heimkomu þeirra úr 80 manna útskriftarferð á Krít. Allir nemendurnir eru nú ýmist í sóttkví eða einangrun en hópurinn kom til landsins á föstudagskvöld. 25. júlí 2021 17:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Sjá meira
Minnst 30 nemendur Flensborgar með Covid-19 eftir útskriftarferð Síðustu daga hafa 30 útskriftarnemendur Flensborgarskólans greinst með Covid-19 eftir heimkomu þeirra úr 80 manna útskriftarferð á Krít. Allir nemendurnir eru nú ýmist í sóttkví eða einangrun en hópurinn kom til landsins á föstudagskvöld. 25. júlí 2021 17:41