Enski boltinn

Timo Werner viss um að mörkin fari að koma

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Timo Werner hefur átt erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Timo Werner hefur átt erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea FC/Getty Images

Timo Werner gekk til liðs við Chelsea frá RB Leipzig seinasta sumar fyrir 53 milljónir punda. Þessi þýski sóknarmaður sem skoraði 28 mörk í 34 leikjum fyrir Leipzig á seinasta tímabili, en hefur nú aðeins skorað fimm mörk í 25 leikjum fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir gott tímabil með Leipzig í þýsku deildinni hefur Timo Werner átt erfitt uppdráttar í búningi Chelsea. Miklar vonir voru bundnar við þennan 24 ára sóknarmann, en hann er viss um að hann geti fundið skotskónna á nýjan leik.

„Þetta hefur verið erfitt fyrir mig af því að ég vil hjálpa liðinu,“ sagði Werner. „Ég vil skora, það er í eðli mínu sem sóknarmaður.“

Werner endaði 14 leikja markaþurrð í leik gegn Newcastle a dögunum, en hann vonast til að geta gert svipaða hluti hjá Chelsea og Didier Drogba gerði á sínum tíma. Drogba skoraði einungis 10 mörk á sinni fyrstu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni, en vann sig svo inn í hug og hjörtu stuðningsmanna liðsins eins og frægt er.

„Það koma margir góðir framherjar í ensku úrvalsdeildina og þurfa eitt tímabil til að finna rétta taktinn,“ sagði Werner. „Mér finnst eins og formið sé að koma og ég sé að verða betri og betri.“

Werner og liðsfélagar hans í Chelsea heimsækja Liverpool í stórleik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni klukkan 20.15 í kvöld. Einungis eitt stig aðskilur þessi tvö lið sem sitja í fimmta og sjötta sæti deildarinnar. Baráttan um meistaradeildarsæti verður harðari með hverri umferðinni, og það er ljóst að þessi leikur er virkilega mikilvægur í þeirri baráttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×