Afar ósáttur við auglýsingar BSRB sem hann telur ólöglegar Helena Rós Sturludóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 24. maí 2023 12:00 Kjartan Már bæjarstjóri með auglýsingu BSRB í nafni Reykjanesbæjar. Hann segist hafa fengið athugasemdir vegna hennar. Vísir/Helena Rós Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, er allt annað en sáttur við auglýsingar BSRB í nafni Reykjanesbæjar þar sem óskað er eftir nægjusömum starfskrafti. Félagsmenn í Starfsmannafélagi Suðurnesja lögðu niður störf í grunnskólum í dag og fjölmenntu á bókasafn bæjarsins í morgun og hittu fyrir bæjarstjórann.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir ljóst að aðgerðir í tíu sveitarfélögum hafi mikil áhrif. Um sé að ræða neyðarúrræði til að ná fram kröfum um jöfn laun fyrir sambærileg störf. Krafa BSRB er sú að félagar þeirra fái sömu laun og samið hefur verið um fyrir aðra starfsmenn sem vinna sömu eða sambærileg störf og að sú launahækkun miði við 1. janúar eins og hjá öðrum, en ekki 1. apríl eins og sveitafélögin gera kröfu um í viðræðum. Sonja Ýr segir félagsmenn BSRB ánægða með auglýsingaherferðina umdeildu. Trausti Björgvinsson, formaður Starfsmannasambands Suðurnesja og húsvörður í grunnskóla, ávarpaði bæjarstjóra á bókasafninu í morgun. Hann sagði fólk upplifa það að vera stöðugt minnt á mikilvægi sitt en væri á sama tíma mismunað í launum. Þetta væri fólk sem hefði staðið ýmislegt af sér í kórónuveirufaraldrinum og fært fram fórnir. Kjartan Már bæjarstjóri áréttaði að Samband íslenskra sveitarfélaga hefði komið að samningnum fyrir hönd Reykjanesbæjar eins og fleiri sveitarfélaga. Hann hvatti til þess að lausn fyndist hið fyrsta. Þá sagðist hann ósáttur við auglýsingaherferð BSRB í nafni Reykjanesbæjar. Í auglýsingunum er óskað eftir nægjusömum starfskrafti. Taldi hann auglýsingarnar ólöglegar og hvatti til þess að þær yrðu endurskoðaðar. Auglýsingarnar vöktu athygli fyrr í mánuðinum en þar er fleiri sveitarfélögum gerð upp leit að starfskrafti sem ýmist þurfi að vera meðvirkur eða nægjusamur. Helena Rós Sturludóttir, fréttamaður okkar, ræddi við Kjartan að loknum fundi með starfsmönnum grunnskóla. Ástandið væri slæmt í grunnskólum bæjarins. Þá ræddi Helena Rós við Trausta sem segir kjánalegt af Sambandi íslenskra sveitarfélaga að leggja til að BSRB fari dómstólaleiðina til að leita réttar síns. Fundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara á mánudag skilaði ekki árangri. Ekki hefur verið boðaður annar fundur í ljósi þess hversu langt ber á milli deiluaðila.
Kjaramál Reykjanesbær Grunnskólar Stéttarfélög Tengdar fréttir Sambandið hafi boðið BSRB „mjög góð kjör“ Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir sambandið hafa boðið BSRB „mjög góð kjör“ í tilboði sínu. Fundur sambandsins og BSRB með ríkissáttasemjara í dag bar hins vegar ekki árangur. Þá var ekki boðað til annars fundar sökum þess hve langt er á milli samninganefnda beggja aðila. 22. maí 2023 20:03 Amma kölluð út í morgun vegna verkfalla Verkföll BSRB hófust af fullum þunga í morgun í níu sveitarfélögum. Samband íslenskra sveitarfélaga og BSRB funduðu hjá ríkissáttasemjara síðdegis en enn er langt í land. Amma var kölluð út í morgun vegna verkfalla í leikskólanum hjá einu barnabarninu. 22. maí 2023 18:49 Getur ekki sótt þá slitnu skólastarfsemi sem er í boði vegna verkfalla Verkföll BSRB hófust að fullum þunga í tíu sveitarfélögum í dag. Samtal er í gangi milli samningsaðila þó ekki hafi veirð formlega fundað í tæpar tvær vikur. Foreldri fatlaðs barns í Ölfus segir verkföllin hafa mikil áhrif en óvíst er hvort foreldrar fái veikindafrí, þurfi að taka út sumarfrí eða verði launalausir til að vera heima með börnunum. 22. maí 2023 12:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Fleiri fréttir „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Sjá meira
Sambandið hafi boðið BSRB „mjög góð kjör“ Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir sambandið hafa boðið BSRB „mjög góð kjör“ í tilboði sínu. Fundur sambandsins og BSRB með ríkissáttasemjara í dag bar hins vegar ekki árangur. Þá var ekki boðað til annars fundar sökum þess hve langt er á milli samninganefnda beggja aðila. 22. maí 2023 20:03
Amma kölluð út í morgun vegna verkfalla Verkföll BSRB hófust af fullum þunga í morgun í níu sveitarfélögum. Samband íslenskra sveitarfélaga og BSRB funduðu hjá ríkissáttasemjara síðdegis en enn er langt í land. Amma var kölluð út í morgun vegna verkfalla í leikskólanum hjá einu barnabarninu. 22. maí 2023 18:49
Getur ekki sótt þá slitnu skólastarfsemi sem er í boði vegna verkfalla Verkföll BSRB hófust að fullum þunga í tíu sveitarfélögum í dag. Samtal er í gangi milli samningsaðila þó ekki hafi veirð formlega fundað í tæpar tvær vikur. Foreldri fatlaðs barns í Ölfus segir verkföllin hafa mikil áhrif en óvíst er hvort foreldrar fái veikindafrí, þurfi að taka út sumarfrí eða verði launalausir til að vera heima með börnunum. 22. maí 2023 12:57