Ein viðureign úrvalsdeildarliða

Fram dróst gegn Víkingi í sextán liða úrslitum í bikarkeppni …
Fram dróst gegn Víkingi í sextán liða úrslitum í bikarkeppni kvenna. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Einn leikur á milli úrvalsdeildarliða verður í sextán liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik en dregið var til þeirra rétt í þessu.

Afturelding og HK mætast 'a Varmá en í öðrum viðureignum mætast lið úr 1. deild og úrvalsdeild, nema hvað tvö fyrstudeildarliðanna, ÍR og Grótta, drógust saman.

Þessi lið mætast í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikars kvenna.

ÍR  Grótta
Fjölnir/Fylkir  ÍBV 
FH  Stjarnan
Selfoss  Haukar
Víkingur  Fram
Afturelding  HK

Bikarmeistarar KA/Þórs og Valur sitja hjá í sextán liða úrslitunum og fara beint í átta liða úrslitin. Leikið verður um miðjan febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert