Þuríður Helga hættir hjá Menningarfélagi Akureyrar Atli Ísleifsson skrifar 13. janúar 2022 13:23 Þuríður Helga Kristjánsdóttir. MAk Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdarstjóri Menningarfélags Akureyrar, hefur sagt starfi sínu lausu. Hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri félagsins í sex ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar og er þar haft eftir Þuríði að tíminn þar hafi verið ævintýralegur. „Þegar ég hóf störf var félagið í afar þröngri fjárhagsstöðu og mikil starfsmannavelta. Með samhentu átaki mín og starfsfólks tókst að snúa þessari stöðu við hratt og örugglega. Félagið hefur látið til sín taka í íslensku menningarlífi, fjárframlög til þess aukist og góður starfsandi og vinnugleði er einkennandi fyrir vinnustaðinn. Þrátt fyrir að njóta velgengni í starfi finn ég að hugurinn er farinn að leita annað og vil ég gefa mér meiri tíma til að sinna áhugamálum og þeim hugarefnum sem standa mér nærri,“ segir Þuríður Helga. Staðan auglýst í lok mánaðar Samkvæmt formanni félagsins, Evu Hrund Einarsdóttur, verður staða framkvæmdastjóra auglýst í lok mánaðarins. „Þuríður hefur átt farsælt starf hjá félaginu og hefur ásamt öflugum starfshópi leitt velgengni þess síðustu árin. Samstarfið hefur verið mjög gott og það er eftirsjá af Þuríði sem við í stjórn óskum alls hins besta. Félagið stendur traustum fótum og það eru fjölmörg tækifæri framundan,“ segir Eva Hrund.
Menning Akureyri Vistaskipti Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Lífið Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Lífið Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Lífið Ný vörulína lagar litabletti í húð Lífið samstarf Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira