„Algjörlega óviðráðanlegar aðstæður“ Samúel Karl Ólason og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 13. janúar 2022 18:46 Á myndbandinu hér að neðan má sjá aðstæður á Háreksstaðaleið á Jökuldalsheiði í gærkvöldi. Ökumaður stærðarinnar vöruflutningabíls lenti í miklu basli á Háreksstaðaleið seinni partinn í gær í gríðarlegu hvassviðri og hálku. Framkvæmdastjóri Smyril Line þakkar fyrir að ekki hafi farið illa en einn reyndasti bílstjóri fyrirtækisins var undir stýri.
Á myndbandinu hér að neðan má sjá aðstæður á Háreksstaðaleið á Jökuldalsheiði í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu náði bílstjóri á kranabíl myndbandinu að neðan og fylgdist með því sem fram fór. Litlu munaði að árekstur yrði en fólksbílar komu úr hinni áttinni á sama tíma og flutningabíllinn rásaði á veginum. Linda B. Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line, segist hafa fengið myndbandið sent úr mörgum áttum í gær og um leið hafi verið farið í að gera greiningu á málinu. Flutningabíllinn hafi verið á negldum dekkjum og allt eins og það átti að vera. Vagninn hafi auk þess verið á keðjum. Veðuraðstæður hafi verið kannaðar fyrir brottför en svo hafi vindhviðurnar á leiðinni orðið svakalegar. „Það kemur svakaleg vindhviða ofan í mikla hálku og hann ræður ekkert við neitt. Það var enginn séns að rétta vagninn við,“ segir Linda. Um algjörlega óviðráðanlegar aðstæður hafi verið að ræða en sem betur fer hafi einn reyndasti bílstjóri landsins verið við stýri. Flutningabíllinn sé verulega stór og taki á sig mikinn vind. Hún þakkar fyrir að ekki hafi orðið nein slys á fólki. Smyril Line leggi mikið upp úr að skoða aðstæður fyrir flutninga og raunar sé legið yfir veðurspá á akstursdeildinni. „Við bíðum af okkur alls kyns veður,“ segir Linda. Þessar hviður hafi ekki gert boð á undan sér.
Samgönguslys Múlaþing Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira