Flugslysið ekki tilkynnt fyrr en rúmum fjórum tímum síðar Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. ágúst 2020 08:49 Flugvélin komin upp á bakka Þingvallavatns tveimur dögum eftir að hún lenti á vatninu. Aðsend
Ekki var tilkynnt um flugslys lítillar flugvélar á Þingvallavatni í mars síðastliðnum fyrr en um fjögurri og hálfri klukkustund eftir að það varð. Rannsóknarnefnd samgönguslysa brýnir fyrir flugmönnum að huga að tilkynningarskyldu sinni. Þetta kemur fram í bókun nefndarinnar um slysið. Flugmaður flugvélarinnar, TF-ASK, flaug henni ásamt farþega frá fisflugvellinum á Hólmsheiði í Landmannalaugar þann 19. mars síðastliðinn. Önnur flugvél, TF-FUN, var í samfloti. Á bakaleiðinni ákvað flugmaður TF-ASK að lenda á ísilögðu Þingvallavatni en hlekktist á við lendingu skammt frá Sandey. Krapi var á yfirborði íssins og nefhjólið skemmdist við lendinguna. Flugmaður TF-FUN hélt áfram til Reykjavíkur eftir að hafa fullvissað sig um í gegnum fjarskipti að í lagi væri með flugmann og farþega TF-ASK. Hvorugur flugmannanna tilkynnti slysið til lögreglu eða rannsóknarnefndar samgönguslysa. Flugmaður TF-ASK hringdi þó í ótengdan aðila eftir aðstoð sem kom á vettvang á vélsleða um þremur tímum síðar. Þeir reyndu að koma flugvélinni á loft að nýju. Vélin fór aðeins um þrjá metra í flugtaksbruninu áður en svokallaður nefhjólsleggur, sem mennirnir höfðu reynt að laga, féll saman að nýju. Við það skemmdist loftskrúfa flugvélarinnar. Því næst var reynt að flytja flugvélina með aðstoð vélsleða en aðeins tókst að færa hana um 20 metra áður en hætt var við flutninga. Með þessu fylgdist vitni í gegnum sjónauka og það tilkynnti loks slysið til lögreglu, um fjögurri og hálfri klukkustund eftir að vélin lenti á ísnum. Flugvélin var loks sótt út á Þingvallavatn með aðstoð þyrlu tæpum tveimur dögum eftir að henni hlekktist á í lendingunni á vatninu. Hér að neðan má sjá myndband frá því þegar vélin var hífð upp af ísnum. Í bókun rannsóknarnefndar segir að flugmaðurinn hafi verið í bóklegu atvinnuflugmannsnámi en átti ólokið verklega hlutanum þegar slysið varð. Nefndin beinir þeim tilmælum til flugmanna að huga að tilkynningaskyldu sinni til nefndarinnar í tilfelli alvarlegra flugatvika og flugslysa. „Enn fremur minnir RNSA á að ekki skal hrófla við vettvangi flugslysa og alvarlegra flugatvika, að undanskyldum björgunarstörfum, nema með leyfi RNSA,“ segir í bókuninni.
Samgönguslys Þingvellir Tengdar fréttir Hífðu flugvélina upp af ísilögðu Þingvallavatni Flugvélin sem hlekktist á við nauðlendingu á ísilögðu Þingvallavatni í fyrrakvöld var hífð upp af ísnum í morgun. 21. mars 2020 12:09 Flugvél hlekktist á við nauðlendingu á Þingvallavatni Engan sakaði þegar lítilli flugvél hlekktist á við nauðlendingu á ísilögðu Þingvallavatni í gærkvöldi. Nefhjól vélarinnar brotnaði við lendinguna en flugmaðurinn ákvað að lenda á ísnum vegna vélarbilunar. 20. mars 2020 20:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Fleiri fréttir „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Sjá meira
Hífðu flugvélina upp af ísilögðu Þingvallavatni Flugvélin sem hlekktist á við nauðlendingu á ísilögðu Þingvallavatni í fyrrakvöld var hífð upp af ísnum í morgun. 21. mars 2020 12:09
Flugvél hlekktist á við nauðlendingu á Þingvallavatni Engan sakaði þegar lítilli flugvél hlekktist á við nauðlendingu á ísilögðu Þingvallavatni í gærkvöldi. Nefhjól vélarinnar brotnaði við lendinguna en flugmaðurinn ákvað að lenda á ísnum vegna vélarbilunar. 20. mars 2020 20:57