Þumalbrotnaði í fyrstu lotu en kláraði samt bardagann og vann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2021 09:01 Valgerður Guðsteinsdóttir vann flottan sigur í Svíþjóð og hefur nú unnið fimm af sjö bardögum sínum sem atvinnumaður. Instagram/valgerdurgud Íslenska hnefaleikakonan Valgerður Guðsteinsdóttir vann flottan sigur í bardaga sínum í Jönköping í Svíþjóð um helgina en hún þurfti heldur betur að harka af sér í bardaganum.
Allir dómararnir dæmdu Valgerði sigur á hinni maltnesku Claire Sammut eða 59-55, 59-55 og 58-56. View this post on Instagram A post shared by Mjo lnir (@mjolnirmma) Mjölnir segir frá bardaganum sem og að þetta hafi ekki gengið þrautalaust fyrir hana. Instagram/valgerdurgud Valgerður fór úr lið á þumalfingri í fyrstu lotu bardagans en hélt áfram. Seinna kom síðan í ljós að hún hafði brotið þumalinn og þarf að fara í aðgerð. Valgerður fékk að vita um alvarleika meiðslanna eftir að hún fór upp á sjúkrahús eftir komuna til Íslands. Hún þurfti að treysta meira á vinstri höndina heldur en upphaflega var planað. Það var hins ekkert verra að taka þennan bardaga með vinstri. „Mér líður ógeðslega vel nema að ég fór úr lið í fyrstu lotu þannig að ég gerði ekki alveg það sem ég vildi gera en við fengum sigurinn,“ sagði Valgerður Guðsteinsdóttir á Instagram. Þjálfari hennar Davíð Rúnar Bjarnason fór líka yfir bardagann hennar og það fór ekkert á milli mála að hann var mjög ánægður með sína konu. Vel bólgin á hendinni.Instagram/valgerdurgud „Það eru allir í skýjunum hér. Þetta var einróma ákvörðun og vann allar lotur nema eina samkvæmt tveimur dómurum og fjórar af sex samkvæmt einum. Þetta fór allt eftir plani því við skipulögðum þetta svona en við ætlum reyndar að klára hana. Valgerði datt úr liði á þumlinum á hægri hendi í fyrstu lotu. Það hafði heilmikil áhrif af því að hún er með mjög sterka hægri hönd,“ sagði Davíð Rúnar Bjarnason. „Við erum samt í skýjunum. Við komum heim með stóran bikar og W á afrekaskrána sem er geggjað. Ég er virkilega ánægður með hana og þetta er einmitt eins og hún átti að gera þetta. Það getur skipt máli að vera ekki þumalinn í lagi í fimm lotur af sex,“ sagði Davíð Rúnar. Valgerður sýndi á sér þumalinn á Instagram síðu sinni eftir heimkomuna í gær og sagði frá því að hún er á leiðinni í myndatöku vegna meiðslanna á þumlinum. Hún hefur nú unnið fimm af sjö bardögum sínum sem atvinnumaður.
Box Mest lesið Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Enski boltinn „Höfum vaxið með hverjum leik“ Fótbolti „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Fleiri fréttir OKC áfram taplaust og Boston byrjar vel Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Dagskráin í dag: Stórveldaslagur í Madríd, Besta deild kvenna og úrslitakeppni í körfubolta Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Aþena upp í Subway-deildina „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ „Höfum vaxið með hverjum leik“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 68-67 | Ekki fallegt en það telur Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Undanúrslit í Meistaradeildinni klár Arnar í tveggja leikja bann „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla Gaf leik því hún vildi ekki keppa við trans konu „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Napoli í kapphlaupið um Albert Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Sjá meira