Drungalegt yfir Skálholtskirkju og kirkjuklukkurnar þagnaðar Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 28. nóvember 2021 21:48 Ómáluð Skálholtsdómkirkja en það stendur þó allt til bóta á nýju ári. Vísir/Egill Aðalsteinsson Það er hálf drungalegt í Skálholti þessa dagana í skammdeginu því kirkjan er ómáluð og kirkjuklukkur kirkjunnar eru þagnaðar. Það horfir þó til bjartari tíma næsta vor þegar kirkjan verður máluð og nýjar kirkjuklukkur verða settar upp, auk nýs þaks á kirkjuna.
Það er mjög sérstakt að koma í Skálholt og sjá glæsilegu kirkjuna á staðnum svona drungaleg og ómálaða eins og raun ber vitni. Öll málningin var smúluð af kirkjunni í haust og verður hún máluð upp á nýtt næsta vor. Þá stendur til að skipta um þak kirkjunnar og verða nýjar steinhellur frá Noregi settar á þakið. En mál málanna í Skálholti eru kirkjuklukkurnar uppi í turni en þær hafa nú verið teknar niður af klukkusmið frá Danmörku, sem mun sjá um viðgerð á klukkunum. Kirkjuklukkurnar voru á sínum tíma gjöf frá Norðurlöndunum en það var danska klukkan sem brotnaði með hvelli fyrir tuttugu árum. „Já, það á að endurnýja hér allt, grindurnar líka, sem þær hanga í og verið er að steypa nýja klukku fyrir þá dönsku, sem brotnaði. Hún kemur hingað en þetta er allt saman kostað af Verndarsjóði Skálholtsdómkirkju. Þetta er mikil framkvæmd, sérstaklega vandasamt í sambandi við nýju klukkuna og hvernig hún á að líta út. Við erum búin að finna réttan tón, sem er ekki alveg sjálfgefið og svo settum við á hana áletrun úr Jeseya um að orð guðs varir að eilífu, höfðum það á latínu, svo allir myndu skilja það,“ segir Kristján Björnsson, vígslubiskup. En hversu mikilvægt er að kirkjuklukkur hljómi vel? „Það er bara mjög mikilvægt því annars kemur fólk ekki til messu,“ segir Kristján. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti innan um kirkjuklukkurnar í turni kirkjunnar. Klukkum í turninum verður ekki hringt aftur fyrr en næsta vorMagnús Hlynur Hreiðarsson Kristján segir það mjög sérstakt að kirkjuklukkurnar í Skálholti séu þagnaðar og munu þegja næstu mánuði. Hann hefur helst áhyggjur af því að hann sjálfur gleymi að mæta í messur þegar engar klukkur eru til að minna sig á að mæta. Hann segir að mögulega verði jólin hringdi inn með kirkjuklukku frá 12. öld, sem er inn í kirkjunni sjálfri.
Bláskógabyggð Trúmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira