Handbolti

Teitur orðaður við lið landsliðsþjálfarans

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Teitur Örn Einarsson gæti verið á leið til Þýskalands eftir tímabilið.
Teitur Örn Einarsson gæti verið á leið til Þýskalands eftir tímabilið. vísir/Andri Marinó

Teitur Örn Einarsson er meðal þeirra örvhentu skyttna sem eru orðaðar við þýska úrvalsdeildarliðið Melsungen sem Guðmundur Guðmundsson stýrir.

Melsungen er í leit að hægri skyttu til að styðja við bakið á þýska landsliðsmanninum Kai Häfner. Þetta kemur fram í HNA í Þýskalandi.

Króatinn Ivan Martinovic hefur verið sterklega orðaður við Melsungen. Samningur hans við Hannover-Burgdorf rennur út þarnæsta sumar en hann gæti komið til Melsungen strax í sumar.

Auk Martinovic hafa Ungverjinn Dominik Mathé og Teitur verið orðaðir við Melsungen. Mathé leikur með Elverum í Noregi en Teitur með Kristianstad í Svíþjóð.

Guðmundur valdi Teit í íslenska landsliðið fyrir HM 2019 en hann hefur fengið fá tækifæri með landsliðinu síðan þá.

Selfyssingurinn, sem er 22 ára, er á sínu þriðja tímabili hjá Kristianstad. Þar leikur hann með landsliðsmanninum Ólafi Guðmundssyni.

Melsungen er í 12. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með sautján stig. Liðið á nokkra leiki til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×