Annie Mist stendur vel að vígi - Gengur illa hjá Björgvini

Annie Mist er efst eftir fyrstu þrjár greinarnar í Berlín.
Annie Mist er efst eftir fyrstu þrjár greinarnar í Berlín. Skjáskot/Instagram Rogue Invitational

Í Berlín fer þessa dagana fram undanúrslitamót fyrir heimsleikana í Crossfit þar sem barist er um ellefu farseðla á heimsleikana í sumar.

Eftir þrjár greinar á mótinu er Annie Mist Þórisdóttir í efsta sæti en hún varð í öðru sæti í þriðju grein mótsins. Í henni áttu keppendur að gera tíu umferðir af dauðalyftum, bekkpressulyftum með ketilbjöllur og hnébeygjum. Í fyrstu umferð þurfti að gera tíu endurtekningar, næst níu, síðan átta og svo koll af kolli og snerist keppnin um að klára sem fyrst.

Annie Mist kláraði greinina á tímanum 12:08,97 mínútum og var aðeins tveimur hundraðshlutum úr sekúndu á eftir Gabriela Migala frá Póllandi sem vann greinina og er í öðru sæti í heildarkeppninni á eftir Annie Mist. 

Þrír aðrir íslenskir keppendur eru í kvennaflokki á þessu móti. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er sem stendur í 14. sæti, Þuríður Helgadóttir er í 24. sæti og Sólveig Sigurðardóttir er í 33. sæti.

Það er hart barist á toppnum því eftir þrjár greinar er Annie Mist efst með 258 stig, Gabriela Migala er í öðru sæti með 256 stig og hin sænska Emma Tall er í þriðja sæti með 255 stig.

Björgvin Karl í veseni

Það gekk ekki vel hjá Björgvini Karli Guðmundssyni í þriðju grein mótsins. Hann endaði í 25. sæti líkt og hann gerði í grein tvö og féll við það niður í sextánda sæti í heildarkeppninni.

Bretinn David Shorunke var fljótastur allra að klára greinina en hann gerði það á tímanum 12:26,68 en Björgvin var rúmum fjórum mínútum lengur en hann á tímanum 16:32,19.

Serbinn Lazar Dukic er efstur í heildarkeppninni með 285 stig en Björgvin er með 165 stig í 16. sæti.

Keppt verður í fjórðu og fimmtu grein mótsins síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert