Handbolti

Menn sem gætu hugsað sér til hreyfings: Selfyssingur og efnilegur Valsari á toppnum

Sindri Sverrisson skrifar
Þessir fimm ættu að hugsa sér til hreyfings að mati sérfræðinga Seinni bylgjunnar.
Þessir fimm ættu að hugsa sér til hreyfings að mati sérfræðinga Seinni bylgjunnar. stöð 2 sport

Sérfræðingar Seinni bylgjunnar völdu fimm leikmenn sem helst ættu að hugsa sér til hreyfings eða væru áhugaverðir fyrir önnur félög, í Olís-deild karla í handbolta.

Innslagið úr þættinum er að finna hér neðst í greininni.

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson úr Aftureldingu var í 5. sæti á listanum. „Hann var burðarás í Aftureldingarliðinu í fyrra en virðist vera í mun minna hlutverki núna. Nú fer Blær væntanlega líka að tikka inn í skyttustöðuna og það fer að verða þrengra um menn,“ sagði Rúnar Sigtryggsson.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson í FH kom næstur og veltu sérfræðingarnir því fyrir sér hvort hann ætti að skipta um umhverfi til að ná fyrri hæðum: „Þetta er strákur sem ég er mjög hrifinn af en hann virðist ekki alveg finna fjölina í ár,“ sagði Rúnar.

Tveir afar efnilegir hjá Haukum og Val

Guðmundur Bragi Ástþórsson, ung og efnileg skytta Hauka, var í 3. sæti:

„Hann er að rústa Grill-deildinni einn síns liðs. Ég held að hann hafi verið með 14 mörk í síðasta leik fyrir ungmennalið Hauka. Hann hefur verið að koma inn á í „rusltíma“ í Olís-deildinni, fékk smátíma alla vega á undirbúningstímabilinu til að koma inn á. Hann fengi klárlega hlutverk í lélegri liðunum í deildinni, stærra hlutverk en hjá toppliði Hauka, og það er spurning hvort að þeir ættu að láta hann fara og koma þá með meiri reynslu til baka.“

Svipaða sögu var að segja af næsta manni, Benedikt Óskarssyni úr Val, sem fæddur er 2002 eins og Guðmundur. Benedikt er sonur Óskars Bjarna Óskarssonar, aðstoðarþjálfara Vals og eins mesta Valsara sem um getur, svo rætur hans eru sterkar á Hlíðarenda:

„Hann er miðjumaður, lykilmaður í ungmennaliði Vals, með 10 mörk í leik. Ef við horfum á leikmannahóp Vals þá er Anton Rúnarsson leikstjórnandi númer 1, 2 og 3. Tumi Steinn [Rúnarsson] kemur inn, þó í mikið minna hlutverki en hjá Aftureldingu í fyrra, en Benedikt er alveg þar á eftir.“

Efstur á listanum var Magnús Öder, leikmaður Selfoss:

„Hann er búinn að vera á skýrslu alla fjóra leikina hjá Selfossi en hefur ekki látið taka til sín sóknarlega. Eins og við vitum er þetta maður sem getur alveg skotið á markið. Það eiga sum lið í vandræðum með að skjóta markið, svo það er spurning hvort hann hugsi sér til hreyfings,“ sagði Rúnar.

Klippa: Seinni bylgjan: Fimm sem ættu að hugsa sér til hreyfings

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×