Rússneskur vísindamaður ákærður fyrir landráð Samúel Karl Ólason skrifar 4. desember 2020 16:51 Anatoly Gubanov er sagður vera sérfræðingur í þróun hljóðfrárra eldflauga. EPA/Maxim Shipenkov Rússneskur vísindamaður hefur verið ákærður fyrir landráð. Fregnir bárust af handtöku Anatoly Gubanov í gær og er hann sakaður um að hafa lekið leynilegum upplýsingum um þróun hljóðfrárra flugvéla og eldflauga til útsendara annars ríkis.
TASS fréttaveitan, sem er í eigu ríkisins, sagði frá því í gær að mál Gubanov væri leynilegt og því væru upplýsingar um hvaða gögn eðlisfræðingurinn er sakaður um að hafa afhent og til hvaða ríkis, væru ríkisleyndarmál. Réttarhöldin sjálf verða líklegast leynileg en verði Gubanov fundinn sekur gæti hann verið dæmdur til allt að tuttugu ára fangelsisvistar. Rússar hafa á undanförnum árum lagt mikið kapp í að þróa hljóðfráar eldfalugar og flugvélar. Þegar tilraun með eina slíka eldflaug heppnaðist í október sagði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, að slík vopn myndu tryggja varnargetu herafla Rússlands til margra ára. Þá var eldflaug af gerðinni Tsirkon skotið af skipi og að eyju í um 450 kílómetra fjarlægð. Þegar mest var, náði eldflaugin áttföldum hljóðhraða, sem samsvarar tæplega tíu þúsund kílómetrum á klukkustund. Hljóðfráar eldflaugar sem þessar gera hefðbundnar eldflaugavarnir nánast úreltar því þær geta breytt snögglega af stefnu og komið sér undan öðrum eldflaugum. Rússar, Bandaríkin og Kína vinna hörðum höndum að þróun þessara vopna. Reuters segir málaferli eins og þau sem beinast nú gegn Gubanov vera tiltölulega algeng í Rússlandi. Í síðasta mánuði hafi maður verið dæmdur í þrettán ára fangelsi fyrir að reyna að leka hernaðarleyndarmálum til Bandaríkjanna. Þá hafi hermaður og bróðir hans verið handteknir í október fyrir að leka ríkisleyndarmálum til Eistlands.
Rússland Hernaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Sjá meira