Snýr aftur til Keflavíkur

Calvin Burks mun leika með Keflavík í vetur.
Calvin Burks mun leika með Keflavík í vetur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Calvin Burks mun leika með Keflavík í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á komandi keppnistímabili. 

Bandaríkjamaðurinn þekkir vel til hjá félaginu eftir að hafa leikið með Keflavík í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þar sem hann var algjör lykilmaður.

Hann skoraði 18 stig, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik en Keflavík varð deildarmeistari á síðustu leiktíð.

Til stóð að Burks myndi spila með Khimik í efstu deild Úkraínu eftir tímabilið en nú er ljóst að af því verður ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert