Ótrúlega róleg nótt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi eystra eru sammála um að nóttin hafi verið allra rólegasta móti. Enginn gistir fangageymslur sem vart gerist aðfaranótt sunnudags.

Að sögn varðstjóra í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa fangageymslur lögreglunnar verið tómar frá því á laugardagsmorgun og man hann ekki til að slíkt hafi áður gerst snemma á sunnudagsmorgni.

Svipaða sögu er að segja af Norðurlandi eystra og allar fangageymslur tómar þar og ekki einu sinni hávaðaútkall sem kom til kasta lögreglunnar í nótt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert