Brynja Dan leiðir starfshóp Ásmundar

Ásmundur Einar Daðason og Brynja Dan Gunnarsdóttir á kosningavöku Framsóknar.
Ásmundur Einar Daðason og Brynja Dan Gunnarsdóttir á kosningavöku Framsóknar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Brynja Dan Gunnarsdóttir mun leiða starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um forvarnir og viðbrögð við áföllum í lífi barna. Vinnan er þáttur í innleiðingu löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins nú í dag.

Brynja, sem er framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins, hefur mikla reynslu af málefnum barna og situr m.a. í stjórnum Barnaheilla og Íslenskrar ættleiðingar. Ásmundur og Brynja skipuðu fyrstu tvö sæti Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í síðastliðnum alþingiskosningum en Brynja er einnig oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ.

Um skipunina segir Brynja: „Mín eigin áfallasaga hefur haft áhrif á allt mitt líf og markað áherslur mínar í starfi og leik. Ég brenn fyrir því að fleyta okkur áfram í þeirri vegferð að vinna betur með áföll og að við sem samfélag styðjum betur við börnin okkar og hlúum að þeim. Ég hlakka því mikið til að kljást við þetta mikilvæga verkefni.“

Draga úr áföllum barna

Starfshópurinn mun greina þjónustuþörf og nauðsynleg úrræði sem gætu dregið úr líkum á áföllum eða áhrifum áfalla og koma með tillögur að úrbótum þvert á þjónustukerfi. Einnig mun hann kortleggja aðstæður sem líklegar eru til þess að valda alvarlegu áfalli í lífi barns eða aðstandanda þess.

Börn sem upplifa áföll í æsku eru m.a. í aukinni áhættu er varðar geðrænan vanda, áhættuhegðun, aukna lyfjanotkun og líkamlega sjúkdóma á fullorðinsárum. Áföll foreldra og náinna aðstandenda sem valda börnum ójafnvægi eða vanlíðan geta haft áhrif á getu þeirra til að sinna barni og bregðast við líðan þess og þörfum.

Starfshópurinn verður skipaður fagfólki, fulltrúum þeirra ráðuneyta og annarra aðila sem koma að þjónustu við börn. Áhersla verður á víðtækt samráð við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum fyrir lok árs 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert