Tekur enn á að rifja upp atburðina 25 árum síðar Birgir Olgeirsson skrifar 26. október 2020 19:38
Sóley Eiríksdóttir, sem lifði af snjóflóðið á Flateyri, segir enn erfitt að rifja upp atburðina 25 árum síðar. Í dag eru 25 ár síðan snjóflóð féll á byggðina á Flateyri. Alls létust tuttugu í flóðinu. Tuttugu og einn komst úr flóðinu af sjálfsdáðum en fjórum var bjargað. Sóley Eiríksdóttir, þá ellefu ára gömul, var föst í níu klukkustundir áður en henni var bjargað. Svana, 19 ára systir Sóleyjar, og Halldór Ólafsson, tvítugur kærasti hennar, létust þegar flóðið skall á heimili þeirra. „Þetta er alltaf ótrúlega erfiður dagur. Það er eiginlega sama hversu langur tími líður, dagurinn sjálfur er alltaf ótrúlega erfiður. Og jafnvel dagarnir á undan. Það er sama hvað maður reynir að vera duglegur og hugsa lítið um þetta. Þessi dagsetning læðist alltaf að manni og er alltaf jafn óþægileg. En þegar dagurinn er búinn þá verður lífið aftur samt,“ segir Sóley. Hún gaf út bók um snjóflóðið fyrir fjórum árum þar sem hún fór mjög djúpt ofan í atburðina. „Eftir það þá gekk ég eiginlega fram af mér, mér fannst minningarnar svo erfiðar. Þannig að ég reyni að hugsa lítið um þetta. En eins og nótt komu til mín minningabrot,“ segir Sóley. „Þá fer maður að hugsa um hluti sem maður leyfir sér minna að hugsa um. En það kemur bara á þessum árstíma. Ég fór að horfa á klukkuna í nótt, beið eftir að hún yrði fjögur. Það er rosalegt hvað þetta situr í manni.“ Hún segir andlegu sárin gróa seint. „Ég hitti einn sem er í fjölskyldunni og tók þátt í að grafa upp fólk þennan dag. Hann spurði hvort þetta yrði einhvern tímann auðveldara? Ég sagðist ekki geta svarað því, þetta verður örugglega alltaf jafn erfitt.“ Áfallastreitan er ekki einungis bundin við þessa dagsetningu. „Ég finn betur fyrir áfallastreitunni. Þegar jarðskjálftinn reið yfir í síðustu viku þá tengdi ég strax. Það gerist þegar jörðin hristist og vond veður bresta á. Líkamlega finn ég ekkert fyrir þessu en andlegu sárin eru til staðar.“
Ísafjarðarbær Tímamót Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Fleiri fréttir Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Bein útsending: Kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Sjá meira