Ghosn var ákærður fyrir að svíkja fé út úr Nissan og vantelja þóknanir svo skeikaði milljörðum króna. Hann sat í fangelsi þegar honum tókst að flýja Japan í desember árið 2019. Hann var falinn í kassa um borð í einkaþotu sem flaug með hann fyrst til Tyrklands og síðan til Líbanon.
Feðgarnir Michael og Peter Taylor eru ákærðir fyrir að hafa hjálpað Ghosn að flýja og koma sér undan refsingu. Þeir eru sagðir hafa fengið 1,3 milljónir dollara, jafnvirði um 158 milljóna íslenskra króna, fyrir viðvikið. Michael var í sérsveit Bandaríkjahers en sonurinn á auglýsingastofu sem er sögð hafa tekið við hluta þóknunarinnar.
Þegar Taylor-feðgarnir voru leiddir fyrir dómara í Tókýó neituðu þeir því að einhver mistök væru að finna í ákærunni á hendur þeim, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Þeim eru nú haldið í sama fangelsi og Ghosn á sínum tíma.
Saksóknarar halda því fram að mennirnir hafi byrjað að undirbúa flóttann með um sex mánaða fyrirvara. Carole Ghosn, eiginkona Carlosar, er sögð hafa leitað til Michaels Taylor en Ghosn sjálfur hafði síðan samband við hann með síma sem hann faldi fyrir japönskum yfirvöldum.
George-Antoine Zayek, vitorðsmaður Taylor-feðganna, er sagður hafa ferðast til Japan árið 2019 til að kynna sér öryggisleit á flugvöllum þar. Komst hann að því að mögulegt væri að smygla Ghosn í farangri sem væri of stór til að komast í gegnumlýsingartæki við byggingu Kansai-flugvallar fyrir einkaþotur. Zayek gengur enn laus.
Nær öruggt er að feðgarnir verði sakfelldir líkt og 99% allra sakborninga í Japan. Þá eru grunaðir menn oft yfirheyrðir án þess að þeir fái að hafa lögfræðing sér til halds og trausts og þeim eru reglulega neitað um lausn gegn tryggingu á meðan réttarhalda er beðið.