Heimsmarkmiðin

UNGA76: Sjálfbær auðlindanýting, loftslagsmál og mannréttindi leiðarstefin

Heimsljós
Guðlaugur Þór Þórðarson ávarpar 74. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna haustið 2019.
Guðlaugur Þór Þórðarson ávarpar 74. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna haustið 2019. UNTV

Í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York fara fram fjölmargir fundir og hliðarviðburðir sem fulltrúar Íslands munu sækja rafrænt.

Nú stendur yfir 76. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York sem sett var með formlegum hætti í síðustu viku. Að þessu sinni verður þingið blanda af fjarfundum og beinni þátttöku vegna heimsfaraldursins. Íslenskir ráðamenn taka þátt í þinginu og hliðarviðburðum með fjarfundabúnaði og myndabandsupptökum.

„Ísland hefur verið öflugur málsvari alþjóðalaga, sjálfbærrar nýtingar auðlinda og síðast en ekki síst mannréttinda og jafnréttis á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þau mál verða í forgrunni hjá Íslandi á þessu allsherjarþingi ásamt aðgerðum vegna heimsfaraldursins og loftslagsbreytinga. Við höldum áfram að vera óhrædd við að tala fyrir alþjóðalögum, mannréttindunum og lýðræði eins og framganga Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna undirstrikaði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Venju samkvæmt flytur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ræðu Íslands á allsherjarþinginu og hún er á dagskrá 27. september.

Í tengslum við þingið fara fram fjölmargir fundir og hliðarviðburðir sem fulltrúar Íslands munu sækja rafrænt. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpar leiðtogafund um jafnari dreifingu bóluefna sem haldinn verður í tengslum við allsherjarþingið í dag, 22. september. Í dag tekur utanríkis- og þróunarmálaráðherra einnig þátt í fundi um málefni hinsegin fólks sem haldinn er á vegum ríkjahóps sem beitir sér fyrir réttindum þess á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Ísland tilheyrir.

Fimmtudaginn 23. september tekur forsætisráðherra þátt í leiðtogafundi um sjálfbærni matvælakerfa og mikilvægi þeirra fyrir innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tekur þá þátt í fundi bandalags um fjölþjóðasamvinnu, sem miðar að því efla fjölþjóðasamstarf og virðingu fyrir alþjóðalögum og mannréttindum. Guðlaugur Þór ávarpar einnig ráðherrafund um orkumál 24. september, en Ísland hefur tekið virkan þátt í undirbúningi fundarins sem sérstakur málsvari sjálfbærrar orkunýtingar og jafnréttis.

Hægt er að fylgjast með allsherjarþinginu og helstu viðburðum á netinu.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×