Ríkisstjórnarfundur um tillögur Þórólfs í hádeginu Samúel Karl Ólason og Kristín Ólafsdóttir skrifa 19. júlí 2021 11:46 Frá ríkisstjórnarfundi í vor. Vísir/vilhelm Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur skilað minnisblaði til heilbrigðisráðherra. Það gerði hann um helgina en hann vill ekki tjá sig um innihald minnisblaðsins í samtali við fréttastofu, fyrr en ríkisstjórnin hafi fjallað um það. Ríkisstjórnarfundur verður haldinn í hádeginu þar sem minnisblaðið verður rætt.
Þórólfur sagðist hafa sagt frá skoðunum sínum undanfarna daga og hann hafi einkum verið að hugsa um landamærin. „Vissulega þarf líka að hugsa um innanlands. Við erum að fá töluverða uppsveiflu í dreifingu á smiti núna innanlands og það virðist ekki bara bundið við höfuðborgarsvæðið.“ Hann segir að ekki sé búið að ná utan um það smit sem sé í dreifingu og rakningateymið standi í ströngu. „Þetta smit er komið víða í samfélagið,“ segir Þórólfur. Hann segir þó að enn sem komið er sýni flestir væg einkenni. „Þetta er sem betur fer fólk sem sýnir tiltölulega væg einkenni, enda eru þau á þeim aldrei sem sýnir yfirleitt ekki alvarleg einkenni.“ Þórólfur segir það geta vakið áhyggjur, berist smit í viðkvæma hópa og eldra fólk, hvort bólusetningin muni einnig vernda þá gegn alvarlegum einkennum. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir.Vísir/Vilhelm Þórólfur hefur gefið til kynna að hann vilji auka eftirlit á landamærum og þá jafnvel að bólusettir farþegar verði krafðir um PCR-vottorð við komu til Íslands. Hann segir að Ísland yrði ekki eina landið í Evrópu til að gera það. „Það er krafist allskonar prófa í flestum löndum,“ sagði Þórólfur. „Það er mjög breytilegt eftir því hvort fólk er bólusett eða ekki og hvort fólk er að koma frá grænum löndum. Það er oft afsláttur af því þegar fólk er að koma frá grænum löndum eins og Íslandi. Við stefnum þó hraðbyri að því að fara í rauðan lit. Þannig að ég held að það verði kröfur á okkur líka í mörgum löndum við ferðalög erlendis.“ „Við erum alls ekki ein á báti. Það eru flest Evrópulönd með kröfur um annaðhvort neikvætt PCR-próf eða hraðgreiningarpróf áður en fólk kemur.“ Skynsamlegt að skima Íslendinga Aðspurður um það hvort verið sé að skoða það að gefa fólki þriðja skammtinn af bóluefnum segir Þórólfur að verið sé að bíða eftir niðurstöðum rannsókna um það hvort slíkt hjálpi. Það yrði þó ekki í fyrsta lagi fyrr en í lok ágúst. Varðandi það hvort til greina komi að skima Íslendinga sem koma til landsins segir Þórólfur það vera skynsamlegt. Að skima Íslendinga sem koma hingað og eigi hér tengslanet. „Því það eru þeir sem hafa valdið flestum af þessum innanlandssmitum sem við höfum verið að greina,“ segir Þórólfur. Hann segir að þess vegna hafi fólk verið beðið um að fara mjög varlega fyrstu dagana eftir heimkomu frá útlöndum og fara í skimun sýni þau minnstu einkenni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Sextán greindust með Covid-19 innanlands og sex í sóttkví Sextán manns greindust með Covid-19 innalands í gær. Þar af voru sex í sóttkví. Einn greindist á landamærunum. 19. júlí 2021 10:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Fleiri fréttir Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Sjá meira
Sextán greindust með Covid-19 innanlands og sex í sóttkví Sextán manns greindust með Covid-19 innalands í gær. Þar af voru sex í sóttkví. Einn greindist á landamærunum. 19. júlí 2021 10:41