Stuðull upp á 162 gekk upp

Tipparinn gæti hafa tippað á jafntefli hjá Porto og Inter …
Tipparinn gæti hafa tippað á jafntefli hjá Porto og Inter í Meistaradeild karla í knattspyrnu í gær. AFP

Tippari hérlendis splæsti á sig miða í Lengjunni fyrir 12 þúsund krónur og þarf ekki að sjá eftir því. 

Á Lengjunni er hægt að tippa á staka íþróttaleiki en einnig er hægt að raða nokkrum leikjum saman á seðil og fá samanlagðan stuðul margfaldaðan með miðaverðinu. 

Þessi tiltekni tippari raðaði saman sjö leikjum samkvæmt tilkynningu frá Íslenskum getraunum og fékk mjög háan stuðul eða 162. Hefur hann þá að líkindum tippað á óvænt úrslit í einhverjum tilfellum.

162x12.000 gerir 1.944.000 og vann hann því tæplega 2 milljónir króna á Lengjunni. 

Vinningurinn lá fyrir í gær og var miðinn keyptur á vefnum lotto.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert