Golf

Ragn­hildur efst á Opna breska á­huga­manna­mótinu | Til mikils að vinna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ragnhildur Kristinsdóttir er í frábærri stöðu sem stendur.
Ragnhildur Kristinsdóttir er í frábærri stöðu sem stendur. EKUSPORTS

Ragnhildur Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er sem stendur með tveggja högga forystu á næstu kylfinga eftir tvo hringi á Opna breska áhugamannamótinu sem nú fer fram í Kilmarnock í Skotlandi.

Sigurvegari mótsins vinnur sér inn keppnisrétt á fjórum risamótum og því er til mikils að vinna.

Ragnhildur átti mögulega sinn besta hring á ferlinum í dag þegar hún lék annan hring mótsins á 66 höggum eða sjö höggum undir pari vallarins. Var hún eini kylfingurinn sem lék undir 70 höggum í dag.

Þegar tveimur hringum er lokið er Ragnhildur á samtals sex höggum undir pari.

Hula Clara Gestsdóttir situr í 12. sæti mótsins á þremur höggum yfir pari og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir er í 53. sæti á alls 11 höggum yfir pari.

Alls eru leiknar 36 holur með svokölluðu höggleiksfyrirkomulagi. Eftir það fara 64 efstu kylfingar mótsins áfram í næstu umferð þar sem keppt er í holukeppni. Leiknar eru 18 holur þangað til komið er í úrslitaleikinn sjálfan en hann er 36 holur.

Sigurvegari mótsins tryggir sér keppnisrétt á fjórum risamótum: AIG-mótinu, Opna bandaríska meistaramótinu, Evian-meistaramótinu og Augusta National-meistaramótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×