UEFA tilkynnir nýtt fyrirkomulag Meistara- og Evrópudeildar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. apríl 2021 14:25 Nýtt fyrirkomulag í Meistaradeild Evrópu sem og Evrópudeildinni tekur gildi haustið 2024. UEFA Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA tilkynnti í dag nýtt fyrirkomulag á Evrópu-keppnum sínum. Um er að ræða bæði Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina. Tekur fyrirkomulagið gildi árið 2024 þegar núverandi sjónvarpssamningur rennur sitt skeið.
UEFA hafði fyrir þónokkru síðan staðfest að tilkynning varðandi nýtt fyrirkomulag Meistaradeildar Evrópu yrði tilkynnt í dag, 19. apríl. Það kom því ekki á óvart þegar stofnendur nýrrar „ofurdeildar“ Evrópu birtu áætlanir sínar síðla kvölds í gær. Upphaflega stóð til að tilkynna breytt fyrirkomulag Meistaradeildarinnar þann 31. mars síðastliðinn en nokkur lið innan ECA - samband knattspyrnufélaga í Evrópu - vildu lengri tíma til að ræða auglýsingamál keppninnar og hvernig fjármunum yrði dreift. Það virtist vera komin niðurstaða í málið fyrir helgi og planið var að tilkynna breytingarnar í dag. Það fór heldur betur á hliðina í gær er tólf af stærri liðum Evrópu ákváðu að gefa út að þau væru að stofna sína eigin deild og myndu ekki taka þátt í Meistaradeildinni í kjölfarið. Nú hefur UEFA birt nýtt fyrirkomulag en það einnig yfir Evrópudeildina og svo þriðju Evrópukeppnina sem verður sett á laggirnar bráðlega, Sambandsdeild Evrópu [UEFA Europa Conference League]. „Svissneska kerfið“ Nýtt fyrirkomulag á rætur að rekja til Zurich í Sviss. Það er þó ekkert tengd fótbolta heldur skák og var kerfið notað á skákmótum þar í landi fyrir meira en öld síðan. Kerfið hefur í raun aldrei verið reynt þegar kemur að afreksíþróttum. Í grunninn snýst þetta um að fjölga leikjum liða í Meistaradeild Evrópu. Hér að neðan má sjá helstu breytingar á keppni þeirra bestu. Liðum fjölgar um fjögur: Úr 32 í 36. Ein deild [Einn riðill]. Tíu leikir gegn tíu mismunandi mótherjum: Alls fimm heima- og fimm útileikir. Lið verða sett í fjóra hluta: Hvert lið spilar tíu leiki en mætir liðum úr öllum fjórum hlutum. Efstu átta liðin fara áfram í útsláttarkeppni með hefðbundnu sniði eins og þekkist nú. Liðin í 9. til 24. sæti færu svo í umspil um hvaða lið myndu einnig komast í 16-liða úrslit. Þau lið sem ekki kæmust úr umspilinu í 16-liða úrslit Meistaradeildar færu í Evrópudeildina. Lokastaða riðilsins hefur áhrif á hver mætir hverjum í útsláttarkeppninni: 1. sæti myndi mæta 16. sæti og koll af kolli. Sama mun eiga við um Evrópu- og Sambandsdeild UEFA. Í Evrópudeild yrðu átta leikir og svo útsláttarkeppni á meðan um sex leiki væri að ræða í Sambandsdeildinni. The #UEFAExCo has approved a new format for club competitions as of the 2024/25 season. The reforms come after an extensive consultation across the football family. The changes made are designed to secure the positive future of European football at every level.#UCL #UEL— UEFA (@UEFA) April 19, 2021 Ekkert mun breytast er varðar þátttökuskilyrði í Meistara- eða Evrópudeildina. Liðin vinna sér inn þátttökurétt með góðu gengi heima fyrir. Um er að ræða breytingar á Meistaradeild karla í knattspyrnu en kvennamegin breytist fyrirkomulagið á næstu leiktíð. Þá verður það líkt því sem þekkist karlamegin í dag.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu UEFA Ofurdeildin Sambandsdeild Evrópu Evrópudeild UEFA Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira