„Er mjög spenntur fyrir þessu og vona að strákarnir séu það líka“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. september 2022 20:30 Hallgrímur Jónasson er nýr aðalþjálfari KA. Vísir/Hulda Margrét Arnari Grétarssyni, þjálfara KA, var vikið úr starfi í gær, föstudag. Hallgrímur Jónasson, aðstoðarmaður Arnars, tekur við stjórnartaumunum og mun stýra liðinu út þetta tímabil sem og næstu þrjú ár. Honum lýst vel á verkefnið.
Arnar var nokkuð óvænt látinn fara frá KA þrátt fyrir góðan árangur í sumar jafnt og á síðustu leiktíð. Arnar sagði í gær að ástæðan væri líklega sú að hann væri með munnlegt samkomulag við annað félag um að taka við þjálfun þess að leiktíðinni lokinni. „Mér lýst mjög vel á þetta. Spennandi tímar framundan. Erum með gott lið, á góðum stað og ég er mjög spenntur fyrir þessu og vona að strákarnir séu það líka,“ sagði Hallgrímur í viðtali við Stöð 2 og Vísi í dag. „Ég er lengi búinn að stefna að því að fara í þjálfun á hæsta stigi en ég var svo sem ekkert búinn að ákveða hvaða tímapunktur myndi passa. Var bara að reyna njóta þess í „núinu“ að vera spila en síðan gerist það fyrir tveimur árum að ég er kúplaður út úr því að fá að spila út af einni tæklingu og þá byrjaði ég að aðstoða Óla Stefán [Flóventsson] og svo Arnar.“ „Maður er búinn að fá smjörþefinn af þessu og ég finn að þetta er eitthvað sem mig langar að gera. Þetta kom virkilega snöggt upp og var ákvörðun sem ég þurfti að hugsa vel. Var svo tilkynnt í gær og ég er mjög ánægður með það.“ „Nú er þetta nýskeð, gerðist seinni partinn í gær. Ég er enn að átta mig á stöðunni en eins og ég segi, liðinu hefur gengið vel í sumar og við ætlum að halda þeirri vegferð áfram. Teljum okkur vera sterka og erum að einbeita okkur á að komast í Evrópu.“ „Arnar gerði margt mjög gott fyrir klúbbinn og nú er sú tíð búin og ég tek við með mitt teymi. Við erum að horfa fram veginn. Erfitt fyrir mig að dæma það núna hvort allir séu himinlifandi eða brjálaðir þar sem þetta er nýskeð og ég á eftir að hitta strákana,“ sagði nýráðinn þjálfari KA að lokum í viðtali sínu við Stöð 2 og Vísi. KA er sem stendur í 3. sæti Bestu deildar með 43 stig, jafn mörg og Víkingur sem situr í 2. sæti. KA mætir KR 2. október þegar úrslitakeppnin hefst.
Fótbolti Íslenski boltinn KA Besta deild karla Tengdar fréttir Arnar hættur hjá KA og Hallgrímur tekur við Arnar Grétarsson er hættur sem þjálfari KA í Bestu deild karla. Hallgrímur Jónasson, aðstoðarþjálfari liðsins verður aðalþjálfari liðsins en hann skrifaði undir þriggja ára samning í dag. 23. september 2022 19:30 Mest lesið Rashford líka skilinn eftir heima Enski boltinn Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Fótbolti Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Pochettino farinn frá Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Fram - ÍA | Skora Skagamenn hjá bestu vörninni? Í beinni: Breiðablik - Stjarnan | Blikar geta minnkað forskot Víkinga Í beinni: HK - Valur | Valsmenn reyna að stöðva sigurgöngu HK Valsmenn hafa unnið alla deildarleiki sína við HK frá hruni Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús „Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“ Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði „Hann þekkir mig örugglega betur en ég sjálfur“ Jafnmörg mörk og rauð spjöld í Vestmannaeyjum Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Sjá meira
Arnar hættur hjá KA og Hallgrímur tekur við Arnar Grétarsson er hættur sem þjálfari KA í Bestu deild karla. Hallgrímur Jónasson, aðstoðarþjálfari liðsins verður aðalþjálfari liðsins en hann skrifaði undir þriggja ára samning í dag. 23. september 2022 19:30