Keflvíkingurinn skoraði tvívegis

Elías Már Ómarsson skoraði tvö af mörkum Excelsior í kvöld.
Elías Már Ómarsson skoraði tvö af mörkum Excelsior í kvöld. Ljósmynd/Excelsior

Elías Már Ómarsson skoraði tvívegis fyrir Excelsior þegar liðið tók á móti Dordrecht í hollensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Elís Már kom sínu liði yfir strax á 2. mínútu og var svo aftur á ferðinni á 50. mínútu en leiknum lauk með 3:0-sigri Excelsior.

Þetta var mark númer 21 hjá Elíasi í hollensku B-deildinni á tímabilinu í 31 byrjunarliðsleik en alls hefur hann skorað 25 mörk á tímabilinu í öllum keppnum.

Excelsior, sem féll úr hollensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, er í níunda sæti deildarinnar með 48 stig, sex stigum frá sæti í umspili um laust sæti í efstu deild, þegar tvær umferðir eru eftir af tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert