Framherjinn sagði Lagerbäck vanhæfan: Aldrei upplifað þetta á þrjátíu ára ferli Sindri Sverrisson skrifar 22. október 2020 12:01 Lars Lagerbäck var afar vinsæll sem landsliðsþjálfari Íslands enda árangurinn afskaplega góður. VÍSIR/GETTY
Lars Lagerbäck hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að greint var frá harkalegum deilum hans við Alexander Sörloth, framherja norska landsliðsins. Norska blaðið Verdens Gang sagði frá rifrildinu í gær en það átti sér stað í kjölfar þess að Noregur féll úr leik í EM-umspilinu, með 2-1 tapi gegn Serbíu. Sörloth mun hafa gagnrýnt leikstíl Noregs og það hvernig Lagerbäck og aðstoðarþjálfarinn Per Joar Hansen hefðu lagt leikinn upp, á miklum hitafundi með þjálfurunum og öllum leikmannahópnum. Lagerbäck hefur nú svarað fyrir sig: „Ég get vel þolað það að menn séu ósammála um ákveðna faglega þætti í fótboltanum. Alexander var hins vegar með ásakanir sem sneru ekki að leikstíl okkar, heldur að því að við Per Joar Hansen værum vanhæfir sem þjálfarar bæði hvað leiðtoga- og fótboltafærni varðaði.“ Oft rætt málin við leikmenn en aldrei svona Lagerbäck hefur þjálfað landslið Svíþjóðar, Nígeríu, Íslands og nú Noregs og alls stýrt landsliðum á átta stórmótum á ferlinum. Hann kveðst oft hafa rætt málin við leikmenn en aldrei með þeim hætti sem þeir Sörloth gerðu. Alexander Sörloth gekk allt of langt að mati Lars Lagerbäck.Getty „Eftir 30 ár í alþjóðlegum fótbolta hef ég aldrei áður upplifað það að leikmaður fari yfir strikið með þessum hætti. Ég hef átt fjölmargar samræður við leikmenn um fótbolta en þær hafa byggt á staðreyndum og snúist um fótbolta. Þær hafa aldrei verið neitt í líkingu við þetta,“ sagði Lagerbäck. Sér eftir athugasemdinni um Kýpurleik Svíinn viðurkennir þó að hafa gert mistök með því að bauna því á Sörloth að hann ætti ekki að tjá sig mikið eftir mistökin sem hann gerði í leik gegn Kýpur fyrir tveimur árum. Sörloth klúðraði þá algjöru dauðafæri fyrir opnu marki. „Í lokin á fundinum ákváðum við þjálfararnir að yfirgefa herbergið og leyfa leikmönnum að ræða um hvernig við ættum að haga framtíðinni. Þegar við vorum að labba út missti ég því miður þolinmæðina. Þá tjáði ég mig um Kýpur og sagði: „Þú varst ekki svona sjálfumglaður fyrir tveimur árum á Kýpur.“ Ég sé eftir þessu orðavali, sem kom eftir langar og heitar umræður. Þetta var tilraun til að fá Alexander til að skilja að hann þarf að hugsa um hvernig liðið virkar. Fyrir mér snýst þetta um að skapa góða frammistöðumenningu.“
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn Bergrós aftur best í heimi og fjögur frá Íslandi í undanúrslitum Sport Í beinni: Valur - FH | Pressa á Valsmönnum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Íslenski boltinn Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Körfubolti Í beinni: Everton - Liverpool | Bítlaborgarslagur Enski boltinn Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Fótbolti Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Íslenski boltinn Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Í beinni: Valur - FH | Pressa á Valsmönnum Í beinni: Man. Utd. - Sheffield Utd. | Botnliðið mætir á Old Trafford Í beinni: Everton - Liverpool | Bítlaborgarslagur Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Tevez fluttur á spítala vegna brjóstverkja Þjálfari hljóp inn á, var rekinn út af og reyndi að faðma dómara Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Juventus í bikarúrslit þrátt fyrir tap Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Gary Martin til Ólafsvíkur Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Sjá meira