fbpx
Sunnudagur 12.maí 2024
Fréttir

Hannesína óttaðist um eigið öryggi á Tenerife – „Ég lá and­vaka nóttina á eftir“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 10. janúar 2022 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hannesína Scheving, hjúkrunar­fræðingur og fram­halds­skóla­kennari, eyddi jólunum á Tenerife en hún tapaði rúmum 300 þúsund krónum rétt á eyjunni rétt áður en hún kom aftur til Íslands. Hannesína segir frá þessu í samtali við Fréttablaðið en það voru óprúttnir sölumenn sem höfðu af henni þessa fjárhæð.

„Ég er nú sjálf mjög passa­söm kona með allt svona en lét ginnast þarna,“ segir Hannesína við blaðamann Fréttablaðsins og útskýrir svo hvað gerðist.

Hún hafði ætlað sér að kaupa vatn en byrjaði þá að tala við sölumenn sem voru að sýna henni síma sem henni leist ágætlega á þar sem hann var nokkuð ódýr. Þegar hún lýsti yfir áhuga sínum á símanum var henni boðið inn í verslunina af sölumanni en þar sá hún spjaldtölvu á 150 evrur sem henni fannst vera flott.

Hannesína segir sölumanninn hafa verið afar sannfærandi. „Þá segist hann hafa unnið á Ís­landi, kunni nokkur orð í ís­lensku og hafi kallað sig Atla þegar hann starfaði hér. En það þurfi maður að koma frá Goog­le og setja ís­lensku inn í hana,“ segir hún en eftir það spurði maðurinn Hannesínu hvenær hún færi heim frá Tenerife.

Hún svarar því og sagðist fara til Íslands miðvikudaginn 5. janúar. Maðurinn segist þá ætla að vera í bandi við hana klukkan 16 á þriðjudeginum. „Svo á þriðju­degi hringir hann og vísar okkur í þessa búð. Þar situr þessi Car­los sem segist vinna hjá Goog­le,“ segir Hannesína.

„Ég vildi bara losna þarna út“

Maðurinn sagðist vera búinn að setja tölvuna upp fyrir hana en að hún þyrfti að greiða fyrir áskrift af sjónvarpsefni til að fá tölvuna. Verðið fyrir áskriftina var 24 evrur í ákveðið marga mánuði en maðurinn sagði Hannesínu að hún gæti hætt að borga fyrir áskriftina þegar hún væri komin til Íslands, hann þyrfti þó fyrst að fá kortið hennar.

„Ég var treg til en þá kemur í ljós að ekki er hægt að gera þetta nema borga alla upp­hæðina á staðnum,“ segir hún en þegar upp var staðið voru sölumennirnir búnir að hafa af henni 2.100 evrur, rúmlega 300 þúsund í íslenskum krónum.

Hannesína óttaðist um eigið öryggi og vildi komast í burtu þegar þangað var komið við sögu. „Ég var drullu­hrædd ein þarna og þetta tók um 4 klukku­stundir. Ég vildi bara losna þarna út,“ segir hún. Þá hafði hún lítinn tíma til að bregðast við þessu fúski þar sem hún var að fara til Íslands daginn eftir.

„Þetta byrjaði allt á því að ég ætlaði bara að fá mér vatn“

Fljótlega eftir að Hannesína yfirgaf verslunina lokaði hún kortinu sem notað var í versluninni. Hún segir að eftir á að hyggja hefði hún átt að vita betur.

„Auð­vitað átti ég ekki að taka þátt í þessu en þeir vissu alveg hvað þeir voru að gera. Ég lá and­vaka nóttina á eftir og fór í gegnum ferlið og áttaði mig á hvernig þeir gerðu þetta. Þeir eru mjög slungnir og halda manni í raun í heljar­greipum. Mér stóð heldur ekki á sama þarna á tíma­bili. Og þetta byrjaði allt á því að ég ætlaði bara að fá mér vatn,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Steinunn Ólína: „Það fyndnasta og örvæntingarfyllsta sem fram hefur komið“

Steinunn Ólína: „Það fyndnasta og örvæntingarfyllsta sem fram hefur komið“
Fréttir
Í gær

Fyrrum fjármálastjóri dró aha.is fyrir dóm – Sagðist eiga inni orlof en var á móti sakaður um að hafa ofreiknað eigið orlof með bókhaldsbrögðum

Fyrrum fjármálastjóri dró aha.is fyrir dóm – Sagðist eiga inni orlof en var á móti sakaður um að hafa ofreiknað eigið orlof með bókhaldsbrögðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Saka Rússa um að nota efnavopn

Saka Rússa um að nota efnavopn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ætlaði að selja sjónvarpið sitt en maðurinn vildi eitthvað annað

Ætlaði að selja sjónvarpið sitt en maðurinn vildi eitthvað annað
Fréttir
Fyrir 2 dögum
Eldgosinu er lokið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað er uppstigningardagur?

Hvað er uppstigningardagur?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nauðgun af gáleysi á Austurlandi og ekki hægt að sakfella

Nauðgun af gáleysi á Austurlandi og ekki hægt að sakfella
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stefán Einar segist aka skriðdreka – „Honum verður ekið á fullri fart í gegnum þessar kosningar“

Stefán Einar segist aka skriðdreka – „Honum verður ekið á fullri fart í gegnum þessar kosningar“